7.10.2010 | 10:34
Jónína Bjartmars og glerhúsið hennar
Jónína Bjartmars er komin heim frá Kína því ekki er lengur hægt að gera útá nútíma þrælasölu, (fyrirgefðu Starfsmannaleiga heitir það víst ) Ekki veit ég hvort Jónína hyggst snúa aftur í pólitík en gruna samt að hún gæli við slíkar hugmyndir ef marka má grein hennar í Fréttablaðinu , sem hún birti svo líka á blogginu sínu. Nú hef ég beðið í 2 tíma eftir að hún birti athugasemd sem ég setti inn hjá henni, en sennilega er ritskoðun í gangi svo ég birti þessa athugasemd bara á eigin síðu þar sem engin ritskoðun er í gangi! Titillinn á pistli Jónínu var: Réttlætiskennd misboðið. Og í lok greinar boðar hún framhald..
En hér er svar mitt
Mér er líka misboðið Jónína, að þú af öllum Íslendingum, þú sem handhafi
spillingarvalds Framsóknarflokksins til fjölda ára, bæði á þingi og í ríkisstjórn,
skulir telja þig þess umkomna að gagnrýna annarra manna siðblindu. Jafnvel þó á
rökum sé reist. Það er bara ekki nógu langt um liðið að þú varst á kafi í þessu
sjálf upp fyrir haus. Svo plís, hlífðu okkur við framhaldinu..Hins vegar máttu alveg
upplýsa hvernig stóð á því að þið hjónin fenguð að kaupa gamla Landssímahúsið við
Austurvöll þegar Síminn var seldur. Þessi eign ríkisins kom aldrei í opinbera sölu.
Og hvað greidduð þið fyrir eignina og hvernig voru kaupin fjármögnuð? Nú þegar
krafa er uppi um opinbera rannsókn á öllu einkavinavæðingarsukki ykkar framsóknar og sjálfstæðismanna þá mun þetta koma upp og betra fyrir þig að upplýsa það sjálf.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:36 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.