18.11.2010 | 12:07
LÍÚ kórinn grætur
Hvenær ætla rolurnar í ríkisstjórninni að skila kvótanum aftur til byggðarlaganna? Byggðunum blæðir en samt eru allir firðir og flóar fullir af fiski og sjómennirnir hanga aðgerðarlausir í beitningaskúrunum. Af hverju láta menn fara svona með sig?
Gagnrýna sjávarútvegsráðherra harðlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Sjávarútvegsmál | Breytt 19.1.2011 kl. 15:33 | Facebook
Athugasemdir
Karfinn hefur verið í mikilli sókn síðustu þrjú árin að mati togaraskipstjóra. Guðmundur Freyr Guðmundsson skipstjóri Oddeyrinni EA segist aldrei hafa séð svona mikinn karfa á miðunum og telur fráleitt að kvótinn skuli hafa verið minnkaður í stað þess að auka hann.
Þorsteinn Sigurðsson sviðsstjóri á Hafrannsóknastofnun útilokar ekki að aukin gullkarfagengd við Ísland geti annars vegar stafað af göngu karfa frá Grænlandi til Íslands og hins vegar af því að stofnunin hafi vanmetið stærð yngri karfaárganga af ákveðnum ástæðum. Hann telur þó ekki ráðlegt að auka kvótann.
Sjá nánar í Fiskifréttum sem komu út í dag.
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 18.11.2010 kl. 12:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.