3.1.2011 | 14:19
Skipað gæti ég væri mér hlýtt
Ólína vill fund vegna mengunarinnar frá Funa
Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvestur-kjördæmi, hefur ritað umhverfisnefnd Alþingis bréf þar sem hún óskar eftir fundi vegna díoxíðmengunar frá Sorpbrennslustöðinni Funa í Skutulsfirði.
Fréttablaðiið og nokkrir vefmiðlar greina frá því í dag að díoxíðmengun frá Sorpbrennslustöðinni Funa í Engidal í Skutulsfirði hafi mælst tuttugufalt yfir viðmiðunarmörkum þegar árið 2007 án þess að sú niðurstaða hafi verið kynnt fyrir íbúum á Ísafirði," segir í bréfi Ólínu sem hún áframsendi einnig á fjölmiðla.
Sorpbrennslustöðin hélt áfram starfsemi þar til nú fyrir skömmu. Málið komst í hámæli nýlega þegar mikil díoxíðmengun mældist í mjólk úr kúm í Engidal. Þar hafa komið upp heilsufarsvandamál hjá ábúendum sem vekja ugg um afleiðingar mengunarinnar fyrir aðra íbúa Ísafjarðarbæjar, einkum í Engidal og Holtahverfi. Þá vakna áleitnar spurningar um það hverng háttað sé reglubundnu mengunareftirliti og upplýsingaskyldu við almenning, því það var Mjólkursamsalan sem uppgötvaði eitrunina í kúnum í Engidal, en ekki heilbrigðiseftirlitið," ritar Ólína.
Hún óskar eftir því að fundur verði haldinn í umhverfisnefnd vegna málsins við fyrsta tækifæri. Hún fer einnig fram á að til fundarins verði kallaðir fulltrúar frá Umhverfisstofnun, Hollustuverndarsviði Umhverfisstofnunar, heilbrigðiseftirlitinu á Ísafirði og bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar.
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Það sem ekki kemur fram í þessari frétt er það að eiginmaður Ólínu er Sigurður Pétursson, núverandi oddviti Samfylkingar í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar. Sigurður er búinn að sitja í bæjarstjórn í mörg ár og ætti því að hafa verið kunnugt um þessa mengun. Saga sorpförgunar á Ísafirði hefur einkennst af tómum vandræðagangi í mörg ár og það er dálítið seint í rassinn gripið að ætla að gera opinbert mál úr þeirri mengun sem fylgir þessum ofnum.
En eins og í öllum ógnunum þá er líka falið tækifæri í þessu fyrir Ísafjörð og Vestfirði og landið allt ef rétt er haldið á málum. Lengi hefur verið leitað leiða til að styrkja atvinnurekstur á Vestfjörðum og þeir hafa viljað fá sína stóriðju. Sorpvinnsla og förgun verður ein af stærstu atvinnuvegum framtíðar og nú er tækifærið fyrir Ísfirðinga að taka forystu og byggja upp stöð sem tæki á móti sorpi frá öðrum landshlutum og jafnvel erlendis frá. Þetta er raunhæft og getur orðið mjög ábatasamt og í tengslum við svona iðnað gætum við sem þjóð tekið forystu í endurvinnslu og grænum lífstíl. Orkuna sem skapast er svo hægt að nýta á margvíslegan hátt. Til áframhaldandi húshitunar eða til reksturs annarrar atvinnustarfsemi svo sem gagnavera. Ég skora á þá sem málið varðar að taka þetta til athugunar í stað þess að finna sökudólga og stunda lýðskrum. Ólína do you read me?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.