5.1.2011 | 14:41
Sorp
Þegar fornleifafræðingar framtíðarinnar fara að gramsa í jarðgerðum leifum frá 21 öldinni munu þeir bara finna plast og ál og einhverja þungmálma. Það mun ekki verða hægt að ráða í daglegt líf 21.aldar mannsins með því að róta í ruslinu okkar eins og fornleifafræðingar eru að gera í dag við fornleifagröft frá landnámsöld. Sorpfjöllin sem urðu til við urðun sorps á síðustu öld opnuðu augu manna fyrir því risavaxna vandamáli sem er fylgifiskur neyzluþjóðfélagsins. Þetta vandamál hefur ekki verið leyst en augu manna hafa opnast og fyrstu skref stigin til að takast á við það. Endurvinnsla er sjálfsagður þáttur en því miður þá er ennþá alltof stór partur af heimilissorpi óendurvinnanlegt og sumt beinlínis hættulegt umhverfinu. Þar eru mest áberandi allskonar plastílát og umbúðir úr áli. Hér á Íslandi hefur sorplosun og förgun verið þjónusta sem mönnum hefur fundist sjálfsögð og eðlileg grunnþjónusta sem ekki þurfi eða eigi að greiða sérstaklega fyrir. Þetta hefur haft í för með sér að yfirvöld reyna gjarnan að sleppa sem ódýrast frá þessum málaflokki eins og nú hefur nýlega komist í hámæli varðandi sorpbrennslur á Ísafirði, Vestmanneyjum og á Klaustri. Á Ísafirði var sorpbrennslustöðin til margra ára staðsett á Skarfaskeri við Hnífsdal, þar var það vindurinn sem sá um mengunarvarnirnar með því að blása hinum eitruðu lofttegundum frá byggð. Samt var það einmitt þessi sama mengun sem lagðist inn fjörðinn á lognkyrrum dögum, sem varð til þess að Funa var fundinn staður innst inni í Engidal af öllum stöðum! Nú hefur þessum ofni verið lokað af heilsufarsástæðum en engar fregnir eru um að öðrum brennsluofnum eigi að loka. Það er ámælisvert. Það er ekki eftir neinu að bíða. Við eigum að taka af skarið en ekki bíða eftir aðfinnslum frá ESB. Nú þarf Umhverfisráðuneytið að girða sig í brók og semja áætlun um meðferð sorps sem tekur til ábyrgðar allra! Framleiðenda umbúða, kaupmannsins, sveitarfélaga, verktaka en síðast en ekki síst ábyrgðar einstaklinganna. Það erum við sem berum sorpið heim til okkar og því eigum við að taka ábyrgð á því að losna við það.
Vestfirðingar munu nú byrjaðir að flokka sorp. Það er af hinu góða en hins vegar hlýtur það að vera skammtímalausn að keyra óendurvinnanlegt sorp hingað suður til urðunar. Þeir ættu að gera sorpeyðingu að sinni stóriðju. Það er bara tæknilegt úrlausnarefni og möguleikarnir óendanlegir!
Hér í Reykjavík hafa nýjar reglur um losun heimilissorps tekið gildi. Þær gera auknar kröfur til íbúðareigenda en á sama tíma er þjónustan aukin. Það er til fyrirmyndar. Við berum öll ábyrgð á umhverfi okkar og þar er meðferð sorpsins sem frá okkur kemur ekki undanskilið. Umhverfisvernd er ekki bara barátta gegn stóriðju og virkjunum. Umhverfisvernd snýr að daglegri umgengni okkar við náttúruna líka hér innan borgarmarkanna
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:53 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.