Páll Magnússon fer yfir strikið

pall_magnusson.jpg

Páll Magnússon, útvarpsstjóri, hefur boðið 365 miðlum að RÚV kaupi af þeim sýningaréttinn að HM í handbolta. Það er gert í því skyni að tryggja að leikir íslenska landsliðsins verði sýndir í opinni dagskrá og þannig aðgengilegir öllum landsmönnum. Ríkisútvarpið býðst auk þess til að greiða 20 prósenta álag á kaupverðið til að bæta 365 undirbúningskostnað af ýmsu tagi.

365 yrði ennfremur heimilt að sýna alla leikina á HM samhliða RÚV og vinna úr útsendingum allt það ítarefni sem fyrirhugað var til þáttagerðar og annarra nota. Í bréfi Páls til 365 er óskað eftir svari eða gagntilboði svo fljótt sem verða má - en þó ekki síðar en klukkan 17.00 á morgun.

Hver gaf Páli Magnússyni leyfi til að sóa almannafé með svona gerræðislegum hætti? RÚV bauð í þetta sjónvarpsefni en Stöð 2 bauð betur. Þannig gerast kaupin. Páll er ekki dagskrárstjóri og það er ekki á hans borði að semja um kaup á íþróttaefni. Ég krefst þess að stjórn RÚV áminni útvarpsstjórann og dragi þetta tilboð til baka eins og skot. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Blessaður,  loksins fann ég sjónarmið í þessu tapsára máli RUV sem ég get fellt mig við.

Þetta "alltofseintírassingripið" tilboð frá Páli er hallærislegt.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 6.1.2011 kl. 19:10

2 Smámynd: Björn Birgisson

Minn bara kominn á Eyjuna!

Björn Birgisson, 6.1.2011 kl. 20:50

3 identicon

Ég segi upp áskrift að Söð 2 ef þeir samþykkja þetta tilboð ekki. Þar er ég að hugsa um þá sem ekki hafa efni að áskrift að "einkastöðinni". Tilboð RÚV er ekki hallærislegt en viðbröð Ara Edvald við því eru sorgleg eins og allt sem frá þeim manni kemur.

Tryggvi Sigurðsson (IP-tala skráð) 6.1.2011 kl. 21:16

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Takk fyrir innlitið gott fólk. Þeim fer fækkandi sem hirða um að gera athugasemdir. Mér finnst það miður svo takk fyrir ómakið

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 9.1.2011 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband