Spjátrungur leynir hagsmunatengslum

Búsáhaldabyltingin átti að marka þáttaskil í stjórnmálum á Íslandi. Hræddir stjórnmálaforingjar lofuðu nýjum vinnubrögðum sem áttu að byggja á gegnsæi og heiðarleika. Eitt af nýmælunum var að alþingismönnum var gert að skrá fjárhagslega hagsmuni og trúnaðarstörf utan þings. Mjög gott mál og ætlað til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. Flestir held ég geri sér vel grein fyrir mikilvægi þess að alþingismenn séu fjárhagslega sjálfstæðir og engum háðir og gegni engum trúnaðarstörfum utan Alþingis. Á þessu er þó misbrestur. Enn leynast rotin epli innan um sem skilja ekki þetta grundvallaratriði. Þetta fólk þykist geta aðskilið einkahagsmuni og almannahagsmuni þegar þessir hagsmunir rekast á. Sagan segir okkur hins vegar að slíkt er aldrei gert. Þetta var líka ástæða þess að stórfyrirtæki fjármögnuðu prófkjör valinna stjórnmálamanna sem enn þráast við að sitja. Nú langar mig að vita, hver fylgist með að þingmenn upplýsi um öll hagsmunatengsl? Og eru engar skráðar siðareglur til fyrir þessa siðblindu? Frétt RÚV um heilsutengda ferðaþjónustu vakti sérstaka athygli mína, eða öllu heldur að heyra hver var formaður þessara samtaka! Þess vegna fór ég á vef Alþingis og athugaði hvort þessi formennska væri þar skilmerkilega tíunduð. Og viti menn, ekki stafkrókur ekki frekar en hjá Ásmundi Einari sem "gleymdi" að tíunda heildsöluna sína. Þessir ungu menn verða að mínu mati að gera það upp við sig hvort þeir vilja vera í pólitík eða viðskiptum. Það gengur ekki að gera bæði.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Heyri það í fréttum RÚV núina áðan að fréttastofan hefur tekið málið upp og spurst fyrir um hverju það sætir að þessar upplýsingar liggi ekki fyrir. Magnús Orri segir það hafi gleymst yea ræt! Það sem er alvarlegra er hvernig hann hefur beitt sér fyrir leyfum innan síns flokks og sem alþingismaður, sem gerir þessum fyrirtækjum kleyft að starfa hér. Þetta er vísir að einkavæðingu heilsugæslukerfisins.  Eftir mun standa 3.flokks þjónusta fyrir aumingja. Þessi mismunun er þegar byrjuð í tannheilsukerfinu. Eftir að Tryggingastofnun hætti samstarfi við tannlækna þá er tannvernd orðin forréttindamál ríkra.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 10.1.2011 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband