Segjum sem svo að HS Orka verði endurheimt úr klóm Ross Beatty og Magma, en hvað svo? Er þá ætlunin að ríkisvæða allan orkugeirann til að koma í veg fyrir að svona ævintýri gerist aftur? Hvað með Orkuveitu Húsavíkur og söluna á Orkustöð þeirra til Ástrala? Þeir segjast munu kaupa fyrirtækið aftur en með hvaða peningum? Hér þarf nauðsynlega að taka af skarið. Ríkisstjórnin þarf að setja lög sem koma í veg fyrir sölu á orkufyrirtækjum til erlendra aðila. Það þolir enga bið. Og það bann á að vera skilyrðislaust líka gagnvart ESB. Varðandi HS Orku þá er ég efins um að þeirri sölu verði rift. Það tekur enginn 33 milljarða upp af götunni í dag og svo er hitt að óvíst er hve arðsöm þessi viðskipti eiga eftir að vera fyrir nýjan eiganda. Íslensk stjórnvöld hafa alla þræði í hendi sér til að takmarka umsvif HS Orku og þau geta líka ráðið gjaldskránni. Ef ekkert álver rís í Helguvík þá mun Ross Beatty naga sig í handarbökin fyrir að hafa látið plata sig
Fyrrverandi áhugamaður um frjálst þjóðfélag. Núverandi áhugamaður um spillingu Og vegna þess að ég er öllum óháður, þá óska ég ekki eftir að komast í bloggvina sambönd. Öllum vinabeiðnum verður því hafnað. Vinsamlega ekki taka það persónulega. Þeim sem vilja hafa samband er bent á póstfangið, jlaxdal@internet.is
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.