Flett ofan af lygaspunanum 1. hluti

isg_i_kaupmannahofn_jpg_550x400_q95.jpgIcesave í augum Samfylkingar hefur alltaf snúist um að halda hlífiskildi yfir Ingibjörgu Sólrúnu, Össuri Skarphéðinssyni, Björgvini G. Sigurðssyni og Jóni Sigurðssyni og hindra að þeirra afglöp í ríkisstjórn Geirs Haarde yrðu rannsökuð ofan í kjölinn. Þetta er hin raunverulega ástæða fyrir því að Jóhanna Sigurðardóttir og forystusveit Samfylkingarinnar voru tilbúin að axla byrðar upp á 600 milljarða fyrir hönd þjóðarinnar.  Ef þetta eru ekki landráð þá veit ég ekki hvað landráð eru. Að koma í veg fyrir opinbera rannsókn á glæpsamlegu athæfi í aðdraganda hrunsins eins og gert var með því að koma í veg fyrir að allir fyrrverandi ráðherrar í ríkisstjórn Geirs Haarde yrðu dregnir fyrir landsdóm er líka glæpur gegn þjóðinni. En þetta lið skal ekki fagna of fljótt. Það eru ennþá tilefni og tækifæri til að draga þessa ólánsömu ráðherra fyrir landsdóm. Slík eru axarsköftin og af nógu að taka.

Þjóðin hafnaði Icesave og fletti ofan af raunverulegri ástæðu fjórflokksins fyrir að berjast fyrir þessari ólöglegu skuldbindingu. Núna neyðast þau til að horfast í augu við þjóðina og viðurkenna glæpaverkin. Það verður erfitt ef marka má fyrstu viðbrögð. Það virðist eðli íslenskra stjórnmála að ljúga og blekkja. Í útlöndum segja ráðamenn sem staðnir eru að lygum oftast af sér eða eru knúnir til þess. Frægust er sneypuleg útreið Bills Clinton vegna Monicu málsins. En þótt íslenskir ráðherrar séu ítrekað teknir með allt niður um sig þá sitja þeir áfram eins og ekkert hafi í skorist! Hvað er þetta nema samtrygging fjórflokksins eins og margoft hefur verið bent á?

Hvenær ætla stjórnmálamenn að hætta að ljúga og blekkja?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nákvæmlega. Þau haga sér eins og þjófur á flótta. Ekkert öðru vísi.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 12.4.2011 kl. 07:13

2 identicon

Icesave I var undirritaður af BG og Geir 6% vextir og öll upphæðin greidd í topp. Þetta er til í skjali í minni tölvu.
Hrikalegri er útkoma Daviðs í SÍ í sannleiksskýrslunni.  Þá fuku nokkurhundruð milljarðar, vikurnar fyrir hrun, til banka sem vitað var, þegar í febrúar voru orðnir gjaldþrota.

Ólafur Sveinsson (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 01:01

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Ólafur þú fellur alltaf í sömu gryfjuna að álykta að þeir sem gagnrýna vinstri stjórnina séu sjálfkrafa í hinu liðinu. Ég hef aldrei réttlætt þau afglöp sem framin voru undir stjórn Davíðs og Geirs.  En því miður þá eru þau brot firnd og borin von að nokkurn tíma verði nokkur dreginn til ábyrgðar og allra síst Davíð Oddson og halldór Ásgrímsson. Það er þetta sem ég á erfiðast með að fyrirgefa af öllu aðgerðaleysinu hjá Jóhönnu.  Hún er búin að hafa 2 ár til að sýna fram á vilja til aðgerða en lítið aðhafst. Ef eitthvað væri að marka þessa stjórn þá væri Stjórnlagaþing búið að ljúka störfum og kvótinn væri ekki lengur fénýttur af útrásar auðmönnum. Í staðinn fyrir að einhenda sér í verk sem þurfti að vinna þá var lagt upp með aðildarumsókn að ESB og samþykkt á nauðaskilmálum Breta og Hollendinga sem og þvingunum Norðurlandanna í efnahagsaðstoð AGS.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 13.4.2011 kl. 08:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband