Jóhanna Sigurðardóttir og Vinstri-Elítan

Skilgreining á Vinstri-Elítu: Fólk sem setur sjálft sig skör hærra en aðra (sem það gjarnan fyrirlítur á grundvelli vitsmuna og menntunarstigs)

Vinstri-Elítan skiptist í grófum dráttum í 2 hópa:

1. fólk með langskólamenntun og
2. kaffihúsarotturnar

Hópur 1 skiptist síðan í pólitíkusa, embættismenn, fjölmiðlamenn og kennara, en hópur 2 skiptist í skáld og önnur gáfumenni til að mynda álitsgjafa og uppgjafa stjórnmálamenn. Þetta lið kalla ég vinstri-elítuna í landinu. Vinstri elítan er hryggjarstykkið í Vinstri Grænum og Samfylkingunni. Fyrir þeim eru stjórnmál sama og trúarbrögð og leiðtogi flokksins þeirra er jafnframt leiðtogi lífs þeirra. Samkvæmt þeirra lífsskoðun þá er pöpullinn heimskur og nauðsynlegt að hafa vit fyrir honum. (Þess vegna sækir margt af þessu fólki í kennslu).
Þetta sést berlega ef félagaskrárnar eru skoðaðar. Við getum farið í gegnum þingflokka og ráðherralista þessarar ríkisstjórnar og dregið alla alþingismenn og ráðherra í dilka samkvæmt skilgreiningu minni að ofan NEMA Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún á þar ekki heima!

johanna_1076763.jpgEftir að Ingibjörg Sólrún framdi valdaránið í Samfylkingunni með aðstoð vinstri-elítunnar árið 2005 þá átti að ýta Jóhönnu í burtu. Ráðherraembættið í Þingvallarstjórninni átti að verða endapunkturinn á stjórnmála þáttöku Jóhönnu og hún hefði getað vel við unað. En örlögin voru ekki á sama máli. Eftir hrakfarir Samfylkingarinnar sem enduðu með algeru kerfishruni þá sáu menn fram á fylgishrun. Því var að undirlagi Össurar Skarphéðinssonar, hins mikla spunameistara, biðlað til Jóhönnu Sigurðardóttur um að leiða flokkinn til valda á ný. Og Jóhanna, þessi aldna alþýðuhetja, lét til leiðast sem aldrei skyldi verið hafa.( Little did she know Crying ) Hún gerði sér enga grein fyrir umfangi verksins sem beið hennar eða hvaða tækifæri hrunið lagði í hendur hennar sem forsætisráðherra. Þar brást henni dómgreindin og fyrir það verður hún dæmd. Það er reyndar kaldhæðnislegt hve margt hún á sameiginlegt með sínum erkióvini á pólitíska sviðinu, Davíð Oddssyni. Bæði eru ranglega flokkuð í hópi elíta sem þau tilheyra ekki í raun og bæði enduðu í störfum sem þau réðu ekki við og bæði þurfti að fjarlægja nauðug.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband