1.1.2012 | 00:52
Frábært áramótaskaup
Ég held að þetta skaup hafi verið jafnbesta skaup frá upphafi. Og það sló út skaupinu 2009, sem maður hefði ekki trúað að óreyndu. Gott að hafa fólk sem sér spaugilegar hliðar á öllu þessu botnlausa rugli sem þjóðinni hefur verið boðið uppá í þessari svokölluðu endurreisn. Allir voru þessir gerendur sýndir í spéspegli háðsins en hvergi farið yfir strikið. óskandi að RÚV gæti boðið okkur skylduáskrifendum uppá andlegt detox vikulega í vetur í staðinn fyrir Spaugstofuna. Ekki veitir landanum af einhverju til að létta geðið eftir Gísla Rúnar og biskupssoninn sællar minningar
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.