4.4.2012 | 02:53
Raunir Sægreifans
Yfirvaldið illgjarnt hér
aðför að mér gerði
sagði að aflann sjálfum mér
seldi á undirverði
Deloitte uppí dans ég bauð
og Dalvík beitti klækjum
Í höftum þurfti að þvo minn auð
í þýzkum fyrirtækjum
Mætir mér Már Guðmundsson
ef mótmælum ég hreyfi
Því ég á Fischfang Union
ég er Þorsteinn greifi
Flokkur: Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 02:54 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.