26.11.2012 | 18:39
Nýja jafnaðarstefnan
2 frjálshyggjumenn hafa tekið sig til og skilgreint jafnaðarstefnuna upp á nýtt. Annar er fæddur inní Sjálfstæðisflokkinn hinn á sér fortíð hjá Alþýðubandalaginu gamla. Báðir vilja innlima Ísland í stórríki þýskra jafnaðarmanna. Ef hugmyndafræði Árna Páls og Magnúsar Orra nær að festa rótum í Samfylkingunni þá verður ekki lengur hægt að tala um hana sem jafnaðarmannaflokk. Samfylkingin er hugmyndafræðilega gjaldþrota stjórnmálahreyfing. Afhverju horfast menn ekki í augu við þann veruleika og stokka upp fjórflokkinn miðað við breyttar þjóðfélagsforsendur í staðinn fyrir að skrifa nýja jafnaðarstefnu til að réttlæta pólitískt umkomuleysi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.