Arðrán í skjóli pólitískrar velþóknunar

Ef Samkeppniseftirlitið og Framsóknarörverpið sem situr þar, sem forstjóri í pólitísku umboði fjórflokksins, starfa eftir lögum, þá þarf greinilega að skerpa á þeirri lagasetningu.  Eða ganga í ESB og taka upp alvöru lagasetningu og alvöru eftirlit.  Þetta eru þung orð en nýjustu úrskurðir þessa sýndar-Samkeppniseftirlits kalla á extreme viðbrögð.  Eða hvar í siðuðu ríki myndi það vera látið viðgangast að 7 fjölskyldur geti í skjóli pólitískrar spillingar , sölsað undir sig 90 % af stærstu auðlind þjóðar án þess að greiða sanngjarnt verð fyrir?  Og núna á að bæta um betur og afhenda aðalkvótagreifanum, Þorsteini Má í Samherja, 20% af botnfiskkvóta Vestmannaeyja í gegnum kaup á fyrirtækinu Bergi-Huginn!   Þetta er svo mikið svínarí að það nær ekki nokkurri átt að þetta geti gerst eftir alla umræðuna um kvótakerfið og framsalið á liðnum árum.  Það er bara verið að sýna okkur fingurinn og núna með aðstoð spillts eftirlitskerfis sem kallar sig öfugnefninu Samkeppniseftirlit!. 

Eigendur Síldarvinnslunnar, Samherji og Gjögur, hafa undanfarin 20 ár, arðrænt samfélagið á Austfjörðum og stolið undan tugum milljarða í formi arðgreiðslna útúr Síldarvinnslunni.  Nú er mál að linni og þessir aðilar skili ránsfengnum til baka.  Og þörfin er mikil fyrir austan.  Samgöngur eru í miklum ólestri og það er brýnt að fara í jarðgangagerð núna strax.  Þess vegna skora ég á alla austfirðinga að standa nú með sjálfum sér og krefjast þess að Síldarvinnslan skili arðinum til samfélagsins en leyfi ekki eigendum samherja að fara með hann útúr fjórðungnum til fjárfestinga annars staðar.  Samherja munar ekkert um að greiða fyrir bæði Norðfjarðargöng og göng undir Fjarðarheiði.  Þeir eru að selja Afríkuútgerðina og hagnast við það um 20 milljarða.  En skildu ekki peningarnir sem fóru í kaupin á Sjólaskipum hér forðum, einmitt hafa komið að mestu vegna velgengni Síldarvinnslunnar?   Velgengni vegna þess að Síldarvinnslan hefur aldrei þurft að borga markaðsverð fyrir hráefni sitt.  Bara vegna þeirra samkeppnisbrota hefur fyrirtækið hagnast um milljarða.  Þess vegna er krafan um að þessir arðræningjar skili einhverju til baka bæði eðlileg og sanngjörn.  Þeir skulda okkur það og meira til og ef þeir eiga milljarða til kaupa á Bergi-Huginn, þá geta þeir farið í þessar jarðgangnaframkvæmdir í staðinn. Fyrirkomulagið yrði eins og við gerð gangnanna undir Hvalfjörð.  Einkafélag  myndi kosta gerð gangnanna og því yrði svo heimilt að innheimta hófleg veggjöld í hóflegan tíma en að þeim tíma loknum tæki ríkið við umsýslu þessara jarðganga.  Vegtollurinn tæki mið af því sem kvótagreifarnir greiddu fyrir afnotin af íslensku fiskveiðiauðlindinni á árunum 1990-2010.  Þeir hafa eigin hugmyndir um hvað sé hóflegt og tími til að þeir láti á það reyna.  Ætli þeir vildu ekki fá sem mest upp í fjárfestinguna?
mbl.is Síldarvinnslan, Samherji og Gjögur í skoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband