Rollugreind Össurar

Um loforð Simma stendur styrr
stór er skuldavandinn
Össur "fyr" sem aldrei fyrr
orða skekur brandinn

Þótt oft við liði líkji dýr
og lítið úr því geri
Hann þekkir ekki yxna kýr
eða vakra meri

Hugaróra hefur elt
honum líður illa
engan strámann fékk'ann fellt
friði til að spilla

Að eiga við þá orðastað
aðferð er að fullu reynd
og skilja ætti Össur það
ef hann hefði rollugreind

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband