24.8.2013 | 16:24
Gylfi Ægis og gleðigangan
Hjá sumum siðamörkin teygð
sem segjast vera edrú,
og saka aðra um samkynhneigð
en sjálfir elska Jesú
Í gleðigöngu Gylfi fer
gott fannst yfirskynið
því bannað útí Eyjum er
að elska sama kynið
Ég viðurkenni vanmátt minn
að varist get ei hugsun um
Í Gay Pride göngu Halldór finn
og Gylfa í hommabuxunum
Flokkur: Tækifærisvísur | Breytt 25.8.2013 kl. 19:19 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.