4.10.2013 | 14:52
Ríkisstjórnin og "Holan"
Ofan í holuna með þetta hyski
sem heldur að arður af óveiddum fiski
eign hinna útvöldu eigi að vera
en alþýðan kostnaðinn ein megi bera
Fyrirheit sjálfum sér glæstust þeir gefa
en gjarnan skít öðrum er skammtað úr hnefa
Nú íslenzkufræðingar fá ekki stæði
í forgrunni musteris undir sín fræði
Flokkur: Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:27 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.