24.11.2013 | 19:20
Sigmundur í Bunkernum
Ég verð nú að segja að trú mín á leiðtogahæfileika Sigmundar Davíðs hefur beðið mikinn hnekki á þessum 6 mánuðum, sem liðnir eru frá því að hann settist í forsætisráðherrastólinn. Veldur þar mestu vaxandi ofsóknaræði drengsins, sem lýsir sér í endurteknu kvarti yfir því hversu allir séu vondir og núna er hann farinn að vara við, að menn sem eru andsnúnir Framsóknarflokknum sitji á svikráðum til að koma þeim frá völdum!! Og allt sem þessir ósvífnu föðurlandssvikarar munu segja á næstu dögum verði tóm lygi og útúrsnúningar! Halló Sigmundur, leitaðu þér hjálpar áður en fer fyrir þér eins og öðrum kunnum leiðtoga, sem hélt sig einstakan og ómissandi og óskeikulan.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:01 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.