Bjóðum Ögmundi að taka við RÚV

Ögmundur er sennilega sá eini sem kemur ólaskaður útúr hruninu og eftirmálum þess.  Á meðan Steingrímur tókst á við jésúkomplexana sína þá vissi Ögmundur allan tímann að hann er okkar lausnari. Hans tími var bara ekki kominn.  Ögmundur og Ögmundur er ekki það sama.  Ögmundur með krákuna Höllu Gunnarsdóttur á öxlinni er ekki sami Ögmundur og nú segir stjórnvöldum til syndanna.  Í morgun var hann á Bylgjunni með lærisveinum sínum og flutti okkur fagnaðarerindið um ríkisútvarpið. Og hann sannfærði mig um að hann væri rétti maðurinn til að rétta þessa stofnun af. Og ég heyrði ekki betur en Brynjar Níelssen hafi bæzt í hóp lærisveinanna.  Svona er máttur orðsins........eða lýðskrumsins..

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eða eins og segir í fjórða boðorðinu: Heiðra skaltu rás eitt og rás tvö.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.12.2013 kl. 08:48

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

haha Elín, þú mátt heiðra Rás 2.  Sjálfur hlusta ég aldrei á þá síbylju. Mínir preferensar eru 1. Rás 1  2. Útvarp Saga 3. Í bítið og Sprengisandur

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 9.12.2013 kl. 09:21

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ögmundur er slóttugasti ormurinn í spillingargryfjunni, ásamt Katrínu Jakobsdóttur (ungliðanum í SUS).

Þau spila sinn eitraða og hættulega blekkingarleik í boði RÚV og Íslenskara Aðalverktaka á Dómsmorðs-brautinni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 9.12.2013 kl. 11:18

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Honum hefur nú ekki alltaf verið sjálfrátt Anna.  En ormur? Meira kannski eins og snákur...þetta með tungur 2 og tala sitt með hvorri....lýsir honum betur.  En hvað ertu að blanda RÚV inní þetta?  Ekki er Ögmundur í RÚV klíku VG.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 9.12.2013 kl. 11:33

5 identicon

Smalarnir segja fyrst Burt með RÚV. Síðan segja þeir: Björgum RÚV, Okkar RÚV, Burt með Pál.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.12.2013 kl. 11:47

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það er endanlega orðið alveg ljóst að fjölskyldu-RÚV-ið hennar Katrínar Jakobs og Ögmundar "Hraunavinar", er enn mannað af sömu forystu og sá um að fóðra blekkingarnar fyrir opinberun bankaránsins.

Hver er stjórnarformaður RÚV, eins og fyrir rán? Og hver er aðalforstjórinn núna, eins og fyrir rán?

JónasFr.&Páll ehf? Ríkisræningja-efh pólitískra áróðurs-"snillinga"?

Fyrst ekki er mögulegt að losna við rót vandans hjá RÚV, þá er eins gott að loka þessari svokölluðu menningar-búllu bankaráns-hönnuða.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 9.12.2013 kl. 12:07

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ég veit ekki betur en að þau skötuhjú: Ömmi og Kata, gefi sig út fyrir að vera í sömu flokksklíkunni ennþá. Eða er búið að leggja niður Vinstri Græna?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 9.12.2013 kl. 12:11

8 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Menn tala um 2 fylkingar innan VG og Katrín hefur hingað til talist til Steingríms og Svavars klíkunnar.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 9.12.2013 kl. 12:15

9 identicon

Loks munu menningarvitarnir tveir, Björn og Ögmundur, fallast í faðma. Mig langar ekki að kosta þá uppákomu. Geta þeir ekki rekið þetta menningarbæli fyrir eigin reikning?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.12.2013 kl. 13:19

10 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Þeir sem vilja Pál í burtu geta skrifað nafn sitt hér

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 9.12.2013 kl. 15:12

11 identicon

Lokum þessari eineltis og þöggunarbúllu.

http://visir.is/adolf-ingi-aetlar-i-mal-vid-ruv/article/2013131209072

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.12.2013 kl. 15:24

12 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Nei. Það væri að fara úr öskunni í eldinn.

Ásgrímur Hartmannsson, 9.12.2013 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband