12.12.2013 | 13:00
Ljóta vitleysan
Þetta fyrirkomulag sem mismunar listamönnum hefur viðgengist allt of lengi og þetta ber að leggja af. Öll mismunun er af hinu slæma og ég þarf ekkert að rökstyðja skoðun mína með einhverri upptalningu á hver sé verðugur og hver ekki. Ég get hins vegar samþykkt fyrirkomulag sem felst í því að við tökum upp heiðursorður listamanna án ríkisstyrkja. Enda eru flestir þessara listamanna á skítsæmilegum eftirlaunum og sumir jafnvel á ríkisvæddum eftirlaunum.
![]() |
24 njóti heiðurslauna listamanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Af hverju fær fólk sem komið er á eftirlaun þessi heiðurslaun? Ætli það skerði lífeyrinn?
Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.12.2013 kl. 13:19
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 12.12.2013 kl. 13:30
Og ég minni á að við eigum fleiri stórleikara en Gunnar Eyjólfsson sem ættu alveg eins skilið að fá þessi heiðurslaun. Það er hið óréttláta við svona flokkadrátt. Furðulegt að bandalag listamanna skuli ekki fyrir löngu hafa krafist uppstokkunar á þessu auðmýkjandi fyrirkomulagi.
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 12.12.2013 kl. 13:36
Svo er hin hliðin sem lýtur að misnotkun þingmanna á þessum úthlutunum og hættunni á að þessir fjármunir séu nýttir eins og félagsaðstoð. Ég þykist sjá alla vega eitt nafn á listanum sem fellur undir þá skilgreiningu
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 12.12.2013 kl. 14:58
ok ég ætla að vera bara hreinn og beinn. Þráinn Bertelsson komst á listann sem skiptimynt í pólitískri refskák Steingríms J. og Vigdís Grímsdóttir átti samúð allra og var því sett á listann. Eða hver er listrænn mælikvarði Alþingis? Við fáum engar skýringar. Bara tilkynningu um að 25 nöfn hafi verið valin úr lottópottinum.
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 12.12.2013 kl. 15:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.