28.12.2013 | 20:31
Mönnum er bara skítsama
Þessi frétt á visi.is er lýsandi fyrir viðhorf gagnvart öldruðum hjá þeim sem síst skildi. Umsjónarmaður sem lætur slíkt yfir sig ganga er ekki starfi sínu vaxinn. Og þjónustuaðili lyftubúnaðarins á skilið tiltal frá framleiðanda lyftunnar. Ef svona bilun kemur upp til sjós, þá gengur vélstjórinn í verkið og finnur bilunina og gerir við hana. Ef hann færi bara í koju þá fengi hann uppsagnarbréf med det samme. Af hverju er annað viðhorf í landi en til sjós? Er það af því gamla fólkið hefur engan málsvara með bein í nefi?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:33 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.