29.11.2014 | 23:08
Vilhjálmur vill virðingu
Vilhjálmur verkalýðsforingi skilur ekkert í því, af hverju kjör fiskvinnslufólks eru svona bág. Honum finnst kvótaeigendur skulda þessu fólki launauppbót. En ef Vilhjálmur hefði ekki verið svona upptekinn við að passa verkamennina á Grundartanga, þessa á háu laununum, þá hefði hann vitað hvers vegna kjör fiskvinnslufólksins urðu útundan hjá verkalýðsforystunni. En á því er einföld skýring. Fiskvinnslufólk á Ísland í dag er að stærstum hluta erlent vinnuafl og þeir eiga sér fáa talsmenn. Íslendingar vilja ekki vinna í fiski einhverra hluta vegna. Þess vegna urðu þessi störf að láglaunastörfum. Síðast þegar átti að semja skrifaði ég nokkra pistla og kom með þá hugmynd að verkamenn í útflutningsiðnaðinum fengju gengistryggð laun. Við það hefðu laun í fiskvinnslu og fiskmjölsverksmiðjum hækkað til muna. Var einhver í forystu verkalýðsfélaga, sem greip þessa hugmynd á lofti eða fékk sams konar hugmynd? Nei, svo var ekki. Vegna þess, að þetta fólk var ekki með neinar kröfur. Þetta fólk er aldrei með kröfur. Þetta fólk hoppar þegar Páll í Vísi segir því að hoppa og þetta fólk flytur búferlum landshluta á milli þegar Páll þingmaður í Vísi lokar fiskvinnslunni á Austfjörðum. Þetta er staðreynd. Spyrjist fyrir, hversu margar íslenzkar fjölskyldur fluttu í blokkina í Grindavík? Sama er fyrir vestan á Flateyri og Þingeyri. Fiskvinnslufólkið er af erlendu bergi brotið og öllum er drullusama hvort það hefur vinnu eða ekki. Aðaláhugamál fyrrum bæjarstjóra á Ísafirði og núverandi bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, var hvort hótelið hans gengi ekki vel og hvort nokkur tæki eftir braskinu með eignir bæjarins. Hann var ekki að hugsa um hag verkakvenna á Flateyri þegar kvótaþjófar að sunnan skildu þar eftir sviðna jörð.
En svona er þetta og þá er erfitt að sína viðeigandi virðingu. Ég kann ekki að votta virðingu á pólsku
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:11 | Facebook
Athugasemdir
Stórlega ofmetinn þessi vilhjálmur. Eða eru laun verkamanna eitthvað betri á akranesi en annarsstaðar? Nei! Þvert á móti.
Ástæðan fyrir sæmilegum launum á Grundrtanga er vaktavinnan.
Og í raun þyrfti að vera miklu miklu hærri laun þar og meiri réttindi o.s.frv. því rannsóknir sína að vaktavinna er mannskemmandi.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 29.11.2014 kl. 23:31
Ekki veit ég hvort Vilhjálmur sé ofmetinn. Alla vega ekki meðal samherja í ASÍ. það sem ég var að gagnrýna var þessi holi hljómur í pistlinum hans. Hann veit alveg sjálfur hvernig í pottinn er búið. Fiskvinnslan var lögð niður á Akranesi án mikillar andstöðu í bæjarfélaginu og það er erfitt að berjast fyrir fólk sem er sinnulaust um réttindi og skilur ekki að það sem tók áratugabaráttu svita og tár, að öðlast, hefur nú verið tekið af þessu fólki án mótbára. Mér svíður það sem sönnum landsbyggðamanni.
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 29.11.2014 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.