6.11.2016 | 21:47
Orðaleikur
Skrafl er orðið yfir mas
einnig rabb og mikið tal
Fyrir Gísla laut í gras
greddufulla Lilliendahl
Þurfti meir en þrjátíu stig
en þrefalt orðið "mella"
Hildur valdi söm við sig
en sigrað hefði ella
Bæði gætu verið grahl
en Gísla "böllur" "digur"
lék við "skuð" á Lilliendahl
og loksins hafði sigur
Gísli meistari, Hildur vann dónaflokkinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Tækifærisvísur | Breytt 1.1.2017 kl. 15:15 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.