16.10.2017 | 15:23
Framsókn
Í andstreyminu eltist við
og athyglina fangar
láta knéi fylgja kvið
kappann Sigurð langar
Nú lífeyrinn vill lána þér
og lætur mása móðinn
ekki lengur eignar sér
í-búðar-lána-sjóðinn
Þótt út úr þeirri örgu neyð
sem áður hafði Framsókn hannað
vel sé hægt að velja leið
er vandinn bara fluttur annað.
Vill fund vegna svissneskrar leiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:50 | Facebook
Athugasemdir
Hvers vegna ætti ég ekki að eiga val um það hvort ég fjárfesti lífeyri minn í áhættufjárfestingum sjóðsstjóranna eða mínu eigin húsnæði á fyrsta veðrétti? Er það síðarnefnda eitthvað lakari fjárfestingarkostur en það fyrrnefnda?
Ég vil ekki vera þræll einkvavæddrar skattheimtu lífeyrissjóða heldur hafa eitthvað um málið að segja.
Finnst þér það ósanngjarnt Jóhannnes Laxdal Björgvinsson?
Guðmundur Ásgeirsson, 16.10.2017 kl. 19:55
Ég er alveg sammála þér Guðmundur. Lestu eitthvað annað út úr vísunni? Svo er ég Baldvinsson en ekki Björgvinsson.
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 16.10.2017 kl. 21:09
Ég biðst innilega afsökunar á því að að hafa farið rangt með með föðurnafnið þitt í fyrri athugasemd. Það voru einfaldlega mistök af minni hálfu og leiðréttast þau vonandi hér með.
Eigðu góðar stundir Jóhannes Laxdal Baldvinsson.
Guðmundur Ásgeirsson, 16.10.2017 kl. 21:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.