16.1.2019 | 17:20
Sjá haltir ganga!
Stafnum hélt ég gæti hent
og hraðar stikað fetið
alveg gleymdi að allt er sent
útá Internetið.
Málflutningur makalaus
mitt því kúlið missti
Líf í rugli rak upp haus
og ranghvolfd augun hristi
Hörð varð orrahríðin þá
hóf mér ekki kunni,
en lenti mínum maga á
Miðflokks-maddömunni.
Flokkur: Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.