Skundað á Austurvöll

Í það minnsta 20 þúsund Íslendingar um allt land, kröfðust þess opinberlega í dag, að Sigmundur Davíð segði af sér sem forsætisráðherra lýðveldisins Íslands. Ég var einn af þeim. Krafan er skýr, við viljum ekki að auðrónar stjórni okkar málum lengur. Auðrónar sem ganga erinda fámennra klíkuhópa eru nú í startholunum að skipta leyfunum af herfangi þrotabúa rændu bankannna á milli sín. Þetta verður að koma í veg fyrir með öllum tiltækum ráðum.  Jafnvel þó það kosti tímabundna stjórnarkreppu og frestun þings.

Það sem hefur verið gert opinbert nú þegar er aðeins brot af því sem á eftir að koma að sögn heimildarmanna. Þess vegna mun þjóðfélagið fara á hliðina ef Alþingi grípur ekki strax til sinna ráða. Ef Alþingismenn sína að þeir skynja alvarleika þess trúnaðarbrests sem varð hér aftur í dag og víkja sja´lfir stjórninni frá og æskja þingrofs þá erum við strax í betri færum til að takast á við þær uppljóstranir úr Panamaskjölunum sem eiga eftir að líta dagsins ljós. 

Því þetta snýst ekki lengur um Sigmund Davíð.  Hann er hins vegar að þvælast fyrir nauðsynlegri hreingerningu í stjórnarráðinu. Menn eins og Gunnar Bragi og Sigurður Ingi gerðu sjálfa sig óhæfa sem ráðherra í blindum stuðningi við siðleysi Sigmundar Davíðs.  Þeir þurfa líka að víkja.  Og ekki bara þeir,  heldur ekki síður Illugi Gunnarsson,  Illuga hefði átt að reka fyrir spillingu fyrir mörgum mánuðum og það hefði verið gert ef formaður Sjálfstæðisflokksins hefði verið ærlegur maður.  En það er hann ekki eins og ótal dæmi sanna. Og talandi um Bjarna Benediktsson, sem þykist enga hagsmuni þurfa að upplýsa alþjóð um frekar en Sigmundur Davíð eða Júlíus Vífill.  Hverjir leppa hans hagsmuni?  Er það konan hans, eða faðir hans eða föðurbræður eða þessir allir?  Af hverju er Bjarni svona oft á Florida?  Eru þeir frændurnir að plotta um næstu Borgunarviðskipti eða getur verið að Bjarni sé bara í ósköp venjulegu fríi að hlaða batteríin..  Eitthvað þykir mér það ósennilegt.  Svona hákarlar þurfa þess ekki.  Og maður sem segir sig úr öllum stjórnum og felur fjárfestingar sínar til þess að komast í valdaaðstöðu í gegnum pólitík, hann er ekki að hugsa um þjóðarhag.  Hann er að hugsa um eigin hag.

Þeir sem í dag hugsa til Bjarna Benediktssonar sem einhvers bjargvættar ættu að íhuga þessi orð mín.  Ég varaði við bæði Þorbjörgu Helgu og Vilhjálmi Þorsteinssyni þegar fólk eins og Egill Helgason mærði Þorbjörgu Helgu og Gísli Baldvinsson sá ekkert athugavert við, að Vilhjálmur gegndi trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna. Ég vissi bara að peningar spilla og það hefur komið á daginn.

Ég er hóflega bjartsýnn á að kjörnir fulltrúar ráði við þetta verkefni að siðvæða land og þjóð. Til þess erum við of langt leidd og of hrædd. Eins og Sigmundur hótaði undir rós þá mun það hafa afleiðingar að rugga bátnum. Guð blessi Ísland!


Vantraust

Í orðinu vantraust felst kjarni málsins. Það þarf ekkert að fimbulfamba um eitthvað allt annað til að finna réttlætingar fyrir röngum ákvörðunum sem leiða til vantraustsins.  Allar þær ástæður eða réttlætingar eiga einfaldlega ekki lengur við þegar vantraust hefur skapast.

Hvort Sigmundur eigi sér málsbætur eða hvort aðrir í sömu aðstæðum hafi hagað sér svipað skiptir engu máli. Þær sakir sem á Sigmund eru bornar þarf forsætisráðherra sjálfur að bera af sér ef vantraustið á að ganga til baka.  Ekki aðstoðarmaður hans eða sauðtryggir samflokksmenn. Því hann er ekki bara forsætisráðherra Framsóknarflokksins,  heldur íslenzku þjóðarinnar.  Og eiginkona hans er ekki bara einhver kona út í bæ,  heldur eiginkona forsætisráðherra þjóðarinnar.

Nú þegar fjölmiðlagjammi Alþingis hefur verið lokað vegna páskahlés, skapast vonandi aðstæður fyrir Sigmund sjálfan og eiginkonu hans til að meta sína stöðu í ljósi þessa vantrausts, sem óumdeilanlega hefur myndast, og hvernig þau eigi að bregðast við.

Þau geta alla vega ekki treyst því að þetta mál hverfi.  Ef þau gera ekkert,  þá gerist samt tvennt. 1. Vantraust verður hugsanlega lagt fram og samþykkt eftir páska.  2. Vantraust verður ekki lagt fram og ekki samþykkt á Alþingi vegna valdahagsmuna ríkisstjórnaflokkanna.

Hvort tveggja mun þýða endalok stjórnmálaferils Sigmundar Davíðs.  HINS VEGAR , EF HANN AF FYRRA BRAGÐI, KÆMI FRAM OG BÆÐIST AFSÖKUNAR Á DÓMGREYNDARBRESTI SÍNUM Í ÞESSU MÁLI ÞÁ MYNDI HANN VINNA ÞJÓÐINA Á SITT BAND.  Svo framarlega sem ekkert misjafnt hefur verið gert í fjárstýringu þeirra hjóna,  sem ekkert bendir til að hafi verið gert.  Enda snýst vantraustið ekki um það.  Vantraustið snýst um siðareglur og frjálsa túlkun þingsins á því hvað þjóðinni kemur við og hvað ekki. Hins vegar er þjóðin ekki refsiglöð ef menn sýna iðrun og auðmýkt fyrst af öllu.  Þjóðin vill fara að sjá að alþingismenn og ráðherrar umgangist það vald sem þeim er falið af auðmýkt en ekki þeim hroka sem nú er normið.

Bjarni vann til baka leiðtogasætið í Sjálfstæðisflokknum í frægu sjónvarpsviðtali þar sem hann kom fram af einurð og heiðarleika.  Sigmundur getur þetta líka ef hann hefur þann þroska og manngreynd sem til þarf. En þá þarf líka eiginkonan að taka meiri þátt.  Hún er opinber persóna hvort sem henni líkar betur eða verr.  Hún er ekki einhver fjárfestir út í bæ.

 


mbl.is Ekki nóg að vera bara reiður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velgerðarranglæti

Verið er að vinna tjón
ef velgerð ræður sköpum
Því börnin verða bara klón
búin til af öpum


mbl.is Meirihluti hlynntur staðgöngumæðrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í myrkri geta margir draumar rætzt

Til er ég að leggja lið
ef leynt sé verði dýru
að forseta ef eignumst við
útrásar-klapp-stýru

Ef enginn segir að það sé
siðferðileg vangeta
Á Tortóla má finna fé
og fjárfesta í forseta

Ég veikur er af valdaþrá
en vandinn hann er þessi
hvað af þessu kaupa má
og Kögun tryggja í sessi

Ég víurnar í Villa ber
og vona að hann bíti á
Ekk'í bráð hann Bjarni fer
ef Brá og Elín sitja hjá

Þjóðin gleypir það með glans
og þingið ekki síður.
Ég hús mun hanna spítalans
hvað sem öðru líður.

Skál fyrir mér og pabba! cool

p.s

Heitt þó hati pöpulinn,
haldið því til haga
eins og aðrir djöfulinn
ég hef gamm að draga.

 


Spáð í andstjörnur

Bjóða uppá Auði og Kók
eldri menn og svannar
Framboð Ástþórs aðeins djók
og enginn þekkir Hrannar

 

 


mbl.is Ekki frátekið fyrir stjörnur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klámhundur í forsetaframboð!

Menn með fortíð eiga ekkert erindi á Bessastaði.  Hver man ekki eftir Stóru Systur, Maríu Þrastar og hneykslun Davíðs Þórs?

Rétt að rifja upp smá kerskni sem varð til vegna þeirra ritdeilna.

 

Sértu af klámhundakyni
og kætist með Davíð Jónssyni
Ei tjáir að neita
ef táli þær beita
með tilboð' í blekkingarskyni

Og þegar María Þrastar
þinn manndóm og kyngetu lastar
ei málsókn skalt hóta
ef konu vilt njóta
því hún bara flengir þig fastar 


mbl.is Davíð Þór íhugar forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG hættir í pólitík?

Vinstri Grænir voru stofnaðir utan um 2 baráttumál.  Umhverfis- og náttúruvernd og svo framgöngu kynjamisréttis undir áherzlumerkjum nærbuxnafeminisma.  Nú bregður svo við að þingmenn flokksins fá ekki eða vilja ekki vera meðflutningsmenn að tillögu um að fela ríkisstjórninni að setja miðhálendið á heimsminjaskrá!  Hvað er í gangi hjá VG?

Er það pólitískt skynsamlegt að krefjast kosninga fyrir flokk með fylgi í frjálsu falli?  Eins og þessi frétt fjallar um, þá var það aðalbaráttumál þeirra í þingsal í gær á meðan þingmenn úr öllum hinum flokkunum voru sammála um þingsályktunartillögu um hálendisverndina..

Ekki það að mér sé ekki slétt sama hvað þingmenn yfirhöfuð dunda sér við þessa dagana.  Ég er löngu ´ættur að vonast eftir einhverju vitrænu úr þeim ranni.  Fólk sem vill starfrækja spilavíti og selja brennivín í dótaverzlunum er ekki líklegt að beita sér fyrir þjóðþrifamálum.  Hins vegar er rökrétt að álykta að næst komi fram frumvarp sem lögleiðir vændi í nafni frjálshyggjukommúnismans sem hér veður uppi.  Ekki síst þegar nærbuxnafeministar VG virðast hafa misst áttanna í sinni pólitísku hugmyndafræði eða á ég frekar að segja vegna áráttukenndrar þráhyggju um geðheilsu forsætisráðherra sem ku eyða óhóflega löngum stundum í myrkvuðum herbergjum Alþingis.   En hver myndi svo sem ekki taka það fram yfir, að sitja undir ræðunum hjá Birni Val og Lilju Rafney.  Sérstaklega þegar þær fjalla ekki lengur um pólitík heldur öfund og illmæli.


mbl.is Vilja að ríkisstjórnin fari frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

I told you so

Klúðrið í sambandi við hönnun, byggingu og takmarkaða nýtingu Landeyjarhafnar er skólabókardæmi um hvernig embættismenn og sérfræðingar eru alls ófærir um að viðurkenna mistök og bera ábyrgð á þeim.  Um pólitíkusa gildir annað. Siglingamálastofnun og síðar Samgöngustofa og siglingasvið Vegagerðarinnar bera alla sérfræðilega ábyrgð á þessu klúðri og þeirra er að gera Alþingi og ráðherra grein fyrir stöðunni og viðurkenna að þessi höfn verði aldrei heilsárshöfn, hvað sem öllum vonum líður.  Þá og aðeins þá, getur ráðherra axlað sína ábyrgð og fyrirskipað lokun Landeyjarhafnar yfir vetrarmánuðina og eflt í kjölfarið samgöngur til Þorlákshafnar með 2 ferjum.  það veitir ekkert af eftir því sem Eyjamenn telja.

Ef menn hafa þann kjark sem til þarf, má draga stórlega úr kostnaði við að hafa Landeyjarhöfn opna allt árið.  Því eins og reynslan sýnir þá fyllist þessi sandgildra í vetrarstórviðrunum og það eina sem gæti komið í veg fyrir það er hreinlega að loka hafnarmynninu með öflugri stálgirðingu þannig að sandburðurinn beygi af leið.  Þetta hljóta verkfræðingar að geta hannað og byggt þótt  þeir hafi haft rangt fyrir sér, um allt annað varðandi þetta verkfræðilega hneyksli í Landeyjarfjöru.  Höfnin verður aldrei annað en sumarhöfn og þess vegna á að nýta hana sem slíka.  Litlir hraðskreiðir báta og prammar gætu þá siglt þangað og haldið uppi túristaflutningum yfir sumarmánuði og svo gætu hraðfiskiskip og minni bátar nýtt þessa höfn án takmarka sem nú gilda.

Ef menn hafa þann kjark og sóma, að viðurkenna þessi mistök þá myndast kannski fordæmi fyrir því að endurskoða mistökin sem verið er að gera í sambandi við framkvæmdir Landspítalans við Hringbraut.


mbl.is Búa ár eftir ár við óbreytt ástand
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér eru stundaðar eftirlitslausar veiðar og rányrkja

Við getum illa mótmælt þessu þegar við höfum verið talsmenn áróðurs um ofveiði í áratugi. Nú er það að koma í bakið á okkur að hafa verið fremsti koppur í búri í ICES. Við höfum nefnilega tekið þátt í fjölda samstarfsleiðangra, ekki bara hér við Ísland heldur allt vestur fyrir Grænland, sem eru svo núna grunnurinn að þessum aðgerðum Bandaríkjamanna. Að skella skuldinni á eftirlitslausa veiði rímar alveg við þessar bullkenningar um að veiðar eyði stofnum.

Það dugar nefnilega ekki að koma núna og segja að þessi áróður hafi bara byggst á misskilningi þegar við látum sömu menn stjórna þessum málum og hafa stundað þessa vísindafölsun meðal fræðimanna við Norður Atlantshaf í áratugi. Við hefðum betur stundað alvöru sjávarvísindi með það fyrir augum að skilja betur náttúrusveiflur í staðbundnum fiskstofnum og kynna þá niðurstöðu fyrir öðrum þjóðum og þar á meðal Bandaríkjamönnum.  Þess í stað leyfðum við vitleysingum með reiknilíkön að vaða uppi með stórfellt inngrip í lífkeðjuna í hafinu.

Alvöru vísindamenn stunda ekki inngrip.  Alvöru vísindi safna upplýsingum með því að fylgjast með því sem er að gerast í rauntíma og reyna svo að spá fyrir um hegðun í framtíðinni.  En Jóhann Fyrrverandi forstjóri Hafró og núverandi æðstiprestur í sjávarútvegsráðuneytinu , innleiddi allt aðra aðferðafræði við fiskveiðistjórn á Íslandi.  Aðferðafræði Hafró byggir á þeirri villukenningu að veiðar á þorski geti hreinlega gengið af honum útdauðum!  Vopnaðir þessari villukenningu fóru þeir af stað með áætlun sem byggðist á friðun smáfisks til að "byggja upp" stærri stofna.   Þetta töldu skrifborðssérfræðingarnir óskeikult þrátt fyrir ábendingar sjómanna um annað. Og þessari stefnu hefur síðan verið fylgt með óbætanlegum skaða fyrir orðspor þorskins.

Að tala um að nú sé ástand þorskins orðið harla gott eftir 40 ára rányrkju kvótakerfisins gæti verið sýnd veiði en ekki gefin.  Sérstaklega þegar þeir leyfa eftirlitslausar veiðar!  Því þegar menn halda til veiða og eiga ekki kvóta í öllum tegundum þá óhjákvæmilega henda menn þeirri tegund sem ekki má veiða.  Núna er til dæmis verið að henda þúsundum tonna af ýsu og þorski sem meðafla.  Þetta eru verstu afleiðingar kvótakerfisins.  Hinar eru þær að eftir því sem aldurssamsetning breytist, þeim mun meiri hætta er á að geldfiskinum fjölgi á kostnað hrygningarfisksins. Og til að kóróna ruglið þá hefur verið gengið freklega á fæðu þorsks hér við land með því að beita öllum sóknarþunga loðnuflotans að veiðum á hrygningarloðnunni.  Og það hefur afleiðingar fyrir hrygningu þorsks og steinbíts.  En fiskifræðingar Hafró afneita öllum slíkum kenningum reynslunnar.

Hvernig væri nú að láta náttúruna njóta vafans og breyta um stefnu.  Hætta þessu inngripi og leyfa náttúrunni að koma aftur á því jafnvægi sem þarf að vera í öllum lífkerfum til að þau eigi möguleika til að þroskast og dafna.  Það næst aðeins með jöfnum kvótalausum veiðum þar sem allur afli er borinn að landi og enginn feitur kvótapúki fitnar á striti sjómanna sem neyðast til að ganga illa um fiskhagana einfaldlega til að hafa í sig og á.

 


mbl.is Orðspor þorsksins gæti beðið skaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar Waage, Áslaug Karen og aðrir skíta og rógberar

Ég er svo sem hættur, að kippa mér upp vegna þess, sem íslenzkir fréttamenn birta á miðlum sínum og kalla fréttmennsku! Þetta samsafn af fésbókarslúðri, slúðri og rógburði hefði enginn sómakær ritstjóri birt fyrir ekki svo löngu síðan. En þetta er víst veruleikinn eins og hann er í dag og við verðum að búa við það.  En það er ekki þar með sagt, að við þurfum að jánka öllu ruglinu og skipa okkur í hópa með og á móti eftir einhverjum rasistamælikvörðum fólks, sem augsýnilega er ekki í andlegu jafnvægi.  Nægir að benda á grein í Stundinni eftir fréttakonu, sem heitir Snærós Sindradóttir því til staðfestingar. En þessi nýjasta rógsherferð Gunnars Waage toppar samt ómerkilegheitin í þessu fólki og því verður að mæta af fullum þunga.  Einfaldlega vegna þess, að hér er verið með röngum hætti, að ráðast að eina frjálsa fjölmiðlinum, sem við höfum, með það að markmiði, að þagga niður í honum. Þetta fólk skilur ekki hvað felst í stjórnarskrárákvæðum, sem varða tjáningar-, mál- og skoðanafrelsi.  Þetta fólk er svo rökþrota, að það skirrist ekki við, að stuðla að ritskoðun, þöggun og innleiðingu fasískra stjórnarhátta, í sinni rugluðu sýn á samfélagið.

Varðandi Útvarp Sögu get ég sagt margt. Því ég hef fylgst með því sem þar hefur verið gert í fjölda ára.  Auðvitað ekki alltaf sammála en alltaf virt það sem stöðin hefur staðið fyrir frá upphafi. Því, að Útvarp Saga þorir þegar aðrir þegja. Og þeir sem ekki þola það ættu bara að halda áfram að hlusta á Bylgjuna.  Og vegna þess að stöðin opnar á frjáls skoðanaskipti er alls ómaklegt að ráðast að stjórnendum hennar fyrir það sem fólk út í bæ lætur út úr sér. Símatímarnir eru að vísu aðaleinkenni stöðvarinnar en alls ekki það besta sem boðið er upp á.  Morgun og síðdegisþættirnir eru hver öðrum betri vegna þess eins að þeim stjórnar fólk sem hefir brennandi áhuga á þjóðfélagsmálum og kann að velja áhugaverða viðmælendur og spyrja þá réttu spurninganna.  Hvar annars staðar en á Sögu,  hefir til dæmis prófessor við háskóla gengið út úr útvarpsþætti í beinni útsendingu vegna beinskeyttra spurninga, sem hann gat ekki svarað? 

Ef einhver getur bendlað Pétur Gunnlaugsson, þann góða mann og húmanista, við rasisma þá væntanlega gera menn það augliti til auglitis.  Það gerði ekki Áslaug Karen þegar hún ákvað að birta þennan nýjasta róg á miðlinum sínum í gær.  Enda hefði hún lent í sömu rökþrotum og annar vitleysingur, Bjartmar nokkur , sem oft hringir í Pétur með staðhæfingar sem alltaf eru hraktar af Pétri jafnóðum. Því ólíkt þessum vitleysingjum sem alltaf eru að hringja inn, þá hefir Pétur yfirburða þekkingu á flestu, hvort sem um er að ræða þjóðfélagsmál, trúarbrögð eða heimspeki.  Ef eitthvað er þá er hann alltof umburðarlyndur gagnvart öllu ruglinu sem innhringjendur varpa fram.  En eigum við að láta Pétur eða Arnþrúði gjalda fyrir það?  Ég held ekki


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband