Röng túlkun á niðurstöðum

Bygg­ing brú­ar og veg­fyll­ing­ar yfir Kolgrafa­fjörð hafði að öll­um lík­ind­um lít­il áhrif á þann mikla síld­ar­dauða sem þar varð vet­ur­inn 2012-2013. Or­sök­ina má held­ur rekja til þriggja ólíkra þátta sem sam­an mynduðu mjög erfiðar aðstæður fyr­ir síld­ina.

Ég held að blaðamaður mbl.is sem skrifaði þessa frétt hefði átt að lesa hana yfir áður en hann setti hana í loftið. Sérstaklega lokahlutann þar sem höfundur skýrslunnar beilínis segir að ekki hafi verið staðið nægilega vel að þverun Kolgrafarfjarðar þegar ákveðið var að gera landfyllingu og brúin höfð alltof lítil miðað við þann mikla mun sem verður á sjávarföllum í Breiðafirði.

„Og þá var hún senni­lega bara of sein að koma sér út,“ sagði Stein­grím­ur. Benti hann aðspurður á að brú­in gæti þá hafa haft áhrif á flótta­leiðina. „Það er minna svæði til að synda út um og meiri straum­ur til að synda á móti,“ bætti hann við.

Erfitt væri að sann­reyna þá til­gátu, þó ef­laust myndu tvær brýr í stað einn­ar yfir fjörðinn ef­laust auðvelda hring­streymið.

Síldinni smalað með hvellhettum í Kolgrafafirði.
Síld­inni smalað með hvell­hett­um í Kolgrafaf­irði. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Eng­ar haffræðileg­ar mæl­ing­ar gerðar fyr­ir bygg­ingu brú­ar­inn­ar

Fram kom einnig í máli Stein­gríms að eng­ar haffræðileg­ar mæl­ing­ar hefðu verið gerðar fyr­ir bygg­ingu brú­ar­inn­ar og vatns­skipti fjarðar­ins ekki mæld með bein­um hætti. Þess í stað hefði ein­falt tví­vítt lík­an verið notað til að meta vatns­skipt­in og brú­in hönnuð á þann veg að vatns­skipt­in yrðu áfram með svipuðu lagi eft­ir bygg­ingu henn­ar.

Stein­grím­ur sagði að ýms­an lær­dóm mætti draga af því þegar ákv­arðanir eru tekn­ar um þver­un annarra fjarða.

„Það hefði þurft að mæla strauma og aðrar aðstæður í firðinum áður en brú­in var byggð. Þá hefði verið hægt að sann­reyna tví­víða líkanið, sem lýsti ekki aðstæðum í firðinum eft­ir þver­un­ina í sam­ræmi við mæl­ing­ar.“

Þetta er allt í samræmi við það sem heilbrigð skynsemi sagði manni á sínum tíma þegar ég fjallaði um þessa manngerðu síldargildru í Kolgrafarfirði. Enn er tilhneyging til að hvítþvo Vegagerðina og verkfræðingana sem komu að þessu tjóni varðandi síldardauðann samanber innganginn á þessari frétt.  Það skil ég ekki.


mbl.is „Síldin var of sein að koma sér út“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frekjan í fötluðum

Fatlaðir eiga enga kröfu á samfélagið um að njóta jafns réttar á öllum sviðum og aðrir. Öll fæðumst við mismunandi. Sum erum líkamlega rétt sköpuð en andlega fötluð aðrir eru líkamlega fatlaðir en andlega heilbrigðir. Okkar litla samfélag getur ekki staðið undir frekjunni í fötluðum til viðbótar við frekjuna í þeim heilbrigðu sem vilja vera á örorku.

Í haust stóð hugur góða fólksins til að lögfesta notendastýrða persónulega þjónustu. Úr því varð ekki að þessu sinni. En samt vill mjög fjölfötluð manneskja fá að verða fósturforeldri. Ef þetta er ekki PR stunt þá veit ég ekki hvað liggur að baki.  Það er ekki fræðilegur möguleiki á að þessi manneskja geti annast barn.  Hún getur ekki einu sinni sinnt sér sjálf.

Hvenær linnir meðvirkni Íslendinga?


mbl.is Freyja stefnir Barnaverndarstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur stimplar sig út

villi bjarnaOg rétt í þessu kiknaði Vilhjálmur Bjarnason fjárfestir og verndari bankabófa, undan álaginu, sem fylgir því að eiga að gæta hagsmuna almennings. Vilhjálmur er fulltrúi þröngra hagsmuna í þjóðfélaginu.  Hann varðar ekkert um tjáningarfrelsi fjölmiðla.  Hann strunsaði út í beinni útsendingu og er þar með búinn að stimpla sig út úr pólitíkinni.  Hann hlýtur að draga framboð sitt til baka í kjölfar þessarar vítaverðu framkomu sem hann sýndi meðnefndarmönnum í Stjórnskipunar og Eftirlitsnefnd en ekki síður þeim dónaskap sem hann sýndi Sigríði Rut Júlíusardóttur, sérstökum gesti nefndarinnar og hennar skoðunum.

 


mbl.is „Nenni ekki að sitja undir svona bulli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brennuvargurinn fundinn

Þá vitum við það. Sýslumannsembættið má framkvæma ólögmæta gjörninga í skjóli eigin þröngra túlkana á lögum. Þeir eru ekkert að láta fordæmisgefandi dóma Mannréttindadómstólsins þvælast fyrir í sínum störfum. Og hafa ekkert heyrt minnst á ÖSE.  Og Sýslumaðurinn nýtur pólitískrar verndar Sjálfstæðisflokksins. Það hefur komið skýrt fram í málflutningi og afstöðu Brynjars Níelssonar.

Í hnotskurn lýtur málið út eins og sýslumaður megi kveikja eld ef þú réttir honum eldspýtu og það má enginn nema slökkviliðið slökkva eldinn og ekki fyrr en eftir viku.  Þetta er galið og við þurfum og eigum ekki að hafa svona embættismenn í vinnu. En fyrst þarf að losna við Sjálfstæðisflokkinn, verndara hins sjúka embættismannakerfis, af þingi.   Um Birgi Ármanns þarf ekki að hafa mörg orð. Hann felldi sig sjálfur með því að reyna að rugla umræðuna sem fer nú fram í Stjórnskipunar og Eftirlitsnefnd.


mbl.is Opinn fundur um lögbannið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er þessi Logi Bergmann?

Nafni hans sem les las fréttirnar á stöð 2 er víst líka hættur og kominn til Árvakurs eftir því sem slúðrað er.  En varla er nú verið að setja lögbann á störf hans? Og hvernig dettur mönnum í hug að halda því fram að Árvakur eigi í samkeppni við 365? Hvaða svið starfssemi þessara tveggja fyrirtækja eru það sem skarast?

Þessi Logi sem er nafni Loga Bergmanns, er sagður hafa lofað fyrir 12 árum að vinna ekki strax hjá samkeppnisaðila Stöðvar 2, þegar hann hætti hjá þeim. Sá samkeppnisaðili hefur væntanlega verið RUV en ekki Árvakur, útgefandi Morgunblaðsins.  Af hverju hringja menn ekki í Pál Magnússon og spyrja hann útí þessa klausu.  Hann var alla vega sjónvarpsstjóri og fréttastjóri á stöð 2 fyrir 12 árum. En kannski er Kristín Þorsteinsdóttir bara að sýna vald sitt.  Hvað svo sem er í gangi snertir það ekki almenning. Og þess vegna langsótt að bera þetta lögbann saman við lögbannið sem sett var á fréttaflutning Stundarinnar af meintum fjárhagsviðskiptum Bjarna Ben í aðdraganda falls Glitnis


mbl.is Lögbann á störf Loga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bréf frá Þjóðskrá

Kt.: 150752-2219

Nafn: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Efni: Skráning á meðmælendalista Framboð til Alþingis: Píratar

Þér tilkynnist hér með að í aðdraganda Alþingiskosninganna þann 28. október n.k. var nafn þitt skráð á meðmælendalista þess framboðs sem nefnt er hér fyrir ofan. Í því skyni að tryggja gagnsæi og efla upplýsingagjöf er þetta bréf sent til þeirra einstaklinga sem skráðir voru á meðmælendalista framboða sem hyggjast bjóða fram til Alþingis. Vakin er athygli á því að hafi kjósandi mælt með fleiru en einu framboði mun hann fá bréf þessa efnis vegna sérhvers framboðs. Enn fremur er bent á að hafi kjósandi mælt með fleiru en einu framboði þá verður hann ekki talinn meðmælandi neins þeirra.

Bestu kveðjur frá Þjóðskrá Íslands.


Ísland og Malta

maltaHBjarni-Benediktssonvað er sameiginlegt með Íslandi og Möltu?

Svar: Spilltur forsætisráðherra

Nú ætla ég að sauma mér búrku. Það er orðin yfirþyrmandi nauðsyn á að fjarlægja Bjarna Benediktsson úr forsætisráðherrastóli. Skömmin sem fylgir setu hans í þessu næst æðsta embætti þjóðarinnar er orðin þrúgandi.  Allir almannatengslar Donalds Trump myndu ekki duga til að koma í veg fyrir álitshnekki Íslands í augum heimsins. Það er skítt að eiga bara bandamenn eins og Möltu.  Lítið gagn í þvi


Hjólastígakerfið löngu sprungið

Nú er það að renna upp fyrir mönnum að vandamálin sem fylgja aukinni notkun reiðhjóla er síst minni en vandamál bifreiðanotkunar.(að frátöldum útblæstrinum) Í dag duga ekki lengur sameiginlegir stígar gangandi, hjólandi og keyrandi vegfarenda. Nú þarf þetta allt að vera aðskilið og helst tvöfalt til að ekki hljótist slys af.  En hafa Reykvíkingar efni á þeim úrbótum sem þarf að gera vegna fjölgunar hjólreiðarmanna á löngu sprungnu hjálreiðastígakerfi borgarinnar?  Það er umræða sem þeir ættu að taka núna í aðdraganda sveitastjórnarkosninga. Mitt svar er einfalt. Það gengur ekki lengur að hjóladólgar fái að hjóla um á sameiginlegum hjólastígum borgarinnar. Það á skilyrðislaust að beina þeim út á göturnar þar sem hraði þeirra ógnar ekki saklausu fólki sem notar núverandi göngu og hjólreiðastíga sér til hreyfings og heilsubótar. Hjóladólgur sem þeysist um á 40 kílómetra hraða eða meira þarf sér hjólarein! Ætla Reykvíkingar að fjármagna fjórbreiða tvöfalda hjólreiðastíga fyrir þessa brjálæðinga?  Og hvað með allt landið sem þarf í framtíðinni undir alla þessa stíga?


mbl.is Nýr hjólastígur um Elliðaárdal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álitamál varðandi Stjórnarskrá

23. gr. Forseti lýðveldisins getur frestað fundum Alþingis tiltekinn tíma, þó ekki lengur en tvær vikur og ekki nema einu sinni á ári. Alþingi getur þó veitt forseta samþykki til afbrigða frá þessum ákvæðum. 
 [Hafi Alþingi verið frestað getur forseti lýðveldisins eigi að síður kvatt Alþingi saman til funda ef nauðsyn ber til. Forseta er það og skylt ef ósk berst um það frá meiri hluta alþingismanna.] 1) 
    1)L. 56/1991, 4. gr. 

Gudni forsetiNú berast af því fréttir að Stjórnskipunar og Eftirlitsnefnd Alþingis ætli að koma saman til að fjalla um lögbannið á Stundina og Reykjavik Media, að kröfu Pirata og fleiri.  En þarf ekki forsetinn fyrst að kveðja Alþingi saman til fundar?  Þegar búið er að rjúfa þing þá hefur það ekki lengur umboð til að koma saman nema fyrir atbeina forseta, samkvæmt þessari grein Stjórnarskrárinnar.  Og af hverju nýta Alþingismenn ekki þetta ákvæði og skora á forsetann að kalla saman Alþingi til að fjalla um lögbannsmálið en einnig að bera fram vantraust á starfandi forsætisráðherra vegna þeirra ávirðinga sem fram hafa komið í afhjúpun fjölmiðla á leyndargögnum úr glæpabankanum Glitni.  Það er ekki nóg að Bjarni Ben hafi verið þvingaður til af samstarfsflokkum, að æskja þingrofs og kosninga.  Það þarf að samþykkja vantraust á þennan spillta stjórnmálamann sem helst er hægt að líkja við hinn alræmda Silvio Berlusconi fyrrum forsætisráðherra Ítalíu.  Það yrði jafngildi Landsdóms í huga margra.

Við viljum ekki svoleiðis stjórnmálamenn.

 


mbl.is Nefndin fundar vegna lögbannsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómerkilegur lýðskrumari brýtur stjórnarskrá

"Ríkið mun nýta forkaupsrétt sinn í Arion banka og þriðjungur hlutabréfa í bankanum afhentur öllum Íslendingum til jafns"

Sigmundur Davíð er með ómerkilegri lýðskrumurum landsins. En hann veit hvað virkar. Hann er holdgervingur djöfulsins í hlutverki freistarans. Og hver vill ekki ókeypis peninga? Sigmundur Davíð heldur að svarið sé allir en þar skilur á milli siðblindu og heiðarleika. Sorrý Sigmundur,  það er sem betur fer til fullt af fólki sem vill ekki skítuga peninga. Skítugir peningar eru til dæmis þjófstolnir peningar, mútufé og önnur verðmæti sem tíðkast í sýndarheimi siðblindingjanna.

simmiAð komast til valda með loforðum um að gefa fólki fémæti, sem heyra undir eignir ríkisins er skýrt brot á stjórnarskránni. Nánar til tekið 41.gr. En auðvitað er það bara smámál í huga margra að fara á svig við grunnlög landsins.  Þess vegna og það er megin ástæðan fyrir þeirri tregðu valdaflokkanna til að endurskoða helstu ákvæði stjórnarskrárinnar að sú endurskoðun mun óhjákvæmilega takmarka frjálslega túlkun núverandi stjórnarskrár.

En gylliboð eins og Sigmundur veifar nú án heimildar framan í kjósendur , geta líka varðað við við almenn hegningarlög. Það er lágmarkskrafa, að okkur sé hlíft við svona loddaraskap. Því munurinn á Sigmundi Davíð og Ástþóri Magnússyni er enginn. Jólasveinar þurfa líka að fara að lögum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband