Færsluflokkur: Tækifærisvísur

Naflastrengur kirkjunnar

Þeim sem rífst um ríkistrú
réttast held ég væri
þann naflastreng að stytta nú
strax, ef ættu skæri


Adam að kenna

Bönnuð á Facebook

Engan hneikslar brjóstið bert
bara opin klaufin
Ef ekki hefði Adam gert
Evu að nota laufin

adam_og_eva_1251497.jpg

brjostamynd.jpg


Fréttaeinelti RÚV

"Mál sem ég var aldrei spurður um"

Eins og úlfur eftir slóð
útvarpsrúvið rennur
en efna bara að eldi glóð
sem einum á þeim brennur

Fréttamennskan meinar hann
marga vekur furður
þeir ljúga öllu uppá mann
sem aldrei var þó spurður

Umkringdur af aulaher
ekki öfundsverður
Hann einn veit hve vaskur er
og vel af Guði gerður

 


Af formannsraunum Bjarna Ben

Hyglir eigin ættliði
Einsa frænd' og pabba
En þegar ógnar þingfriði
þarf að spyrja Dabba

Að velja rétt ráð-herra spil
reyndist þrautin þyngri
Þótt þeir sem tilkall ættu til
teldust á einum fingri

Að sætta ólík sjónarmið
svo allir hlýði
er ekki versta verkefnið
í valdastríði

Nú sneyptir þurfa þingflokksmenn
að þrauka næstu árin
Í beinni sáum Brynjar N
bros' í gegnum tárin

Ég met það ei sem merki um
mannleika og hlýju
Í framan fíluhrukkunum
fjölga mun að nýju


Netfrelsi

Níð og róg og neikvæð orð
á netið setur
lastari sem lyklaborð
lamið getur


Forsendubresturinn síðari

Ríkisstjórnin furðu sterk
stýrir syndagjöldum
og fremur öll sín fræknu verk
fyrir "opnum" tjöldum

Iðka' ei lengur lygimál
líkt og gerðist forðum
Er á skatta og skuldabál
skvett var tómum orðum

Því ríkisstjórnin ráða kann
ráðgjafa og bjána
en forsendurnar aldrei fann
fyrir lækkun lána

Við útkomunni enginn bjóst
öðru var hér lofað
Þótt vera ætti öllum ljóst
hvað yfir hefur vofað

Þeir sem eiga auð og völd
öllu vilja ráða
og afskrifa því álögð gjöld
aðeins fyrir fjáða

"Að fara á stofu"

Fólkið losnar fjötrum úr
fyrr en úti er árið
Og aftur geta fínar frúr
í Framsókn, litað hárið

Útsvar

Stefán Bogi stóð sig vel
strítt af Helga Seljan
Það sýnir Þóru vinarþel
í þáttinn skyldi velj'ann

Umhleypingar að morgni

Klukkan átta kíkti ég út
hvorfinn allur skítur
hissa kallinn hrökk í kút
"haven" orðinn hvítur

Bragæfingar

 Frumhent

Lengist Simma lyga slóð
lítill er hér friður
Skuldir þegar sliga þjóð
þarf að fella niður

 Hringhent

Lifnar dagur, lýsir nótt
léttist bragur andans
áður magur eflist fljótt
efna hagur landans


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband