Færsluflokkur: Tækifærisvísur
26.3.2014 | 04:36
Hanna Birna situr enn
Veturseta á valdastól
virðist Hönnu erfið
Hún réð til hjálpar fífl og fól
sem fatta ekki kerfið
Gísli og Þórey þurf 'í raun
í þessu ráðuneyti
að eyða ummerkjum á laun
um eigin tölvuskeyti
DV ekki af sér dró
í einelti þau lagði
En að þeim bara Hanna hló
hristi haus og þagði
Upplýsingar engar gaf
eins og flest við munum
hvort skipt hafi hún sér af
hælisumsóknunum
Embættis óhæfuverk
aldrei fall 'í gleymsku
Orðin þeirra öll ómerk
eigin lýsa heimsku
Um íhald ríkir óeining
öll sín loforð svíkja
og túlka allan ágreining
eins og þjóðin eigi að víkja.
Áfram svona endalaust
eflaust gæti haldið
nema þau fari frá í haust
því fólkið hefur valdið
Tækifærisvísur | Breytt 28.3.2014 kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2014 | 14:25
Bjarmalandsför Gunnars Braga
Almennt ríkir fát og flaustur
flestir Úkraínu flýja.
en Gunnar heldur glaður austur
að gamna sér með Deshchytsia
Nú er von að fólkið fagni
framsóknar á bæjunum
Og varaliðið verð'að gagni
vopnað nýju "græjunum"
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 14:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2013 | 20:01
Svo koma 4 mögur ár.....
Er lægðin yfir landinu
lyfti sér um millibör
Þeir sem stóðu að strandinu
stýra vilja okkar för
Meðal þeirra megum sjá
minni spámenn standa
þurfalinginn Þorstein Má
og þann sem stjórnar Granda
Sigmundur með maðkað mél
munstrað áhöfn getur
Ásmund setur oní vél
á útkíkkið hann Pétur
Með Bjarna aðeins eiga sess
Illugi og Stjáni
Og vara Hanna vegna þess
að varla er hann bjáni
Ekki fleiri nefna nöfn
nenni ég að sinni
enda fleyið enn í höfn
útaf áhöfninni
15.11.2013 | 14:44
Egils saknað
Egill greyið bitlaus, ber
bókum yfir hengur.
Spegill þjóðar ekki er
Efstaleitis lengur
Glöggir menn sjá að þetta eru sléttubönd því snúið við hljómar vísan:
Lengur Efstaleitis er
ekki þjóðar spegill
Hengur yfir bókum ber
bitlaus greyið Egill
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.11.2013 | 16:28
Undirlægjuháttur Þorsteins Pálssonar
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2013 | 14:06
Karl Th. og trukkalessan
Höfundinum ei til hróss
að hafa birt á Pressunni
meinsemi gegn "móður ljóss"
en mælt með trukkalessunni
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2013 | 13:01
Ásmundur Einar
kominn er maður sem kann
Ásmundur orðinn er aðal
nú aðstoðar Sigmundur hann
![]() |
Ásmundur: Tel mig hafa tíma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2013 | 01:08
Háskólinn og holan
Í Háskóla heimskunnar vestur á Melum
hirðum við lítt um það hverju við stelum.
Mottóið okkar, að menn bara muni
"merkin" rétt setja svo engan neitt gruni
-Í fjársvelti ríkisins byggðum má blæða
því byggja skal höll hinna íslenzku fræða.-
Atkvæðismunar á Alþingi neytti
ólánsöm Kata sitt samþykki veitti
Framkvæmdir hófust án frekari tafa
fenginn var verktaki, ýta og grafa.
-Í fjársvelti ríkisins byggðum má blæða
því byggja skal höll hinna íslenzku fræða.-
Ef byggja skal höll er að mörgu að hyggja
en helst er það fjármagn sem þyrfti að tryggja
Ei lengur neinn efast að íslensk við erum
eins og með Hörpu við mistök hér gerum
-Í fjársvelti ríkisins byggðum má blæða
því byggja skal höll hinna íslenzku fræða.-
Áður en börn okkar detta í brunninn
byrgja þarf svæðið og moka í grunninn
Uppi í Háskóla enginn er friður
því Illugi ákvað að skera þar niður
-Í fjársvelti ríkisins báðum má blæða
byggðum og byggingu íslenzkra fræða.-
Alþýðan þarf ekki höll hinna heimsku
í huga sér geymir svo fall' ekk' í gleymsku
dýrmætar sögur og dróttkvæðin þungu
dýrustu djásn hinnar íslensku tungu
byggðum og byggingu íslenzkra fræða.-
4.10.2013 | 14:52
Ríkisstjórnin og "Holan"
Ofan í holuna með þetta hyski
sem heldur að arður af óveiddum fiski
eign hinna útvöldu eigi að vera
en alþýðan kostnaðinn ein megi bera
Fyrirheit sjálfum sér glæstust þeir gefa
en gjarnan skít öðrum er skammtað úr hnefa
Nú íslenzkufræðingar fá ekki stæði
í forgrunni musteris undir sín fræði
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2013 | 10:41
Örlætisgjörningur
Tvöfeldnina telja má
tilganginum þjóna
Sýrlendingum senda á
sex milljónir króna
Örlætið sem í því felst
engu máli skiftir
því allt sem ei til tekna telst
tryppið Vigdís riftir
![]() |
Veita 6 milljónir til flóttamanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt 11.9.2013 kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)