Færsluflokkur: Tækifærisvísur

Kveðið við Jósefínu

  1. Jósefína Dietrich ritar:
    2. september 2013 kl. 21.17

    Við femínistarnir stöndum saman:

    Frækin ýmsa hefur háð
    hildi‘og unnið marga bráð,
    vísur kveða víst því skal
    um veiðiklóna Lilliendahl.

    Ég lofa hennar fimi‘og frægð,
    fegurð, þokka, vit og slægð,
    en allra mest ég mæri þó
    hve marga dóna‘í svaðið dró.

    Upp úr viðbjóð illum fress
    oft hún veltir kát og hress,
    og gamla hruma fauska fús
    fer með eins og læða mús.

  2. Jóhannes Laxdal ritar:
    3. september 2013 kl. 8.58

    Undir taka ekki mér
    allar sýnast fúsar
    Þótt Jósefína jarði hér
    Jón í líki músar

    Af Háskólanum heimta svar
    hverju það svo þjóni
    Að hafa megi Hannes Þar
    en hafna beri Jóni

    Ekki margir fylla flokk
    sem finnst að Hildi gaman
    Nú dónakallar stígi á stokk
    og standi allir saman

    :)

  3. Jósefína Dietrich ritar:
    3. september 2013 kl. 21.59

    Mest að gamni að litlum körlum læður leita
    og ýmsar skrámur oft þeim veita
    – en einu gildir hvað þeir heita.

    Ef femínistar á þá hvessa aðeins róminn.
    með siginn berja larð þeir lóminn
    – ljúft er blóði‘að væta góminn.

    Kannski‘að Hildur Hannes hremmi næst í klærnar
    ljúfu þeli þvæ ég tærnar
    þó að sofni‘á honum flærnar.

  4. Jóhannes Laxdal ritar:
    4. september 2013 kl. 9.23

    Lítilsigldar læður leita bráðar
    engum manni eru háðar
    enda ævi einar smáðar

    Vont er þegar veröld vilja breyta
    feministar friði neita
    forynjur þær ættu að heita

    Fröken Hildur hún er engin hetja
    Kynjum vill í kappi etja
    og kallana á jaðar setja

  5. Kynlífsvenjur kvenskassanna þarf að kanna
    úr viðjum losna líkamanna
    lárétt sex svo láta banna

    Þótt feminista flestir okkar forðast kunni
    vökvaþurrð í Venusbrunni
    veldur skaða' á náttúrunni

    Að gaspra svona gagnast ekki geði mínu
    Ber er hver á bloggi sínu
    Bið að heilsa Jósefínu

Feministaofsóknir

Heiftin ein og hatrið bert
huga þeirra skræma
sem hafa margra mannorð svert
í málum sem þær dæma

Því sjálfar bera sálartjón
seka brjóta þrjóta
Í svaðið drógu dónann Jón
Dætur Stígamóta

Á sökunauti sigur fá
sorgir engra sefa
en étur aðeins innan þá
sem aldrei fyrirgefa

Af Háskólanum heimta svar
hverju það svo þjóni
Að hafa megi Hannes þar
en hafna beri Jóni

Ekki margir fylla flokk
sem finnst að Hildi gaman
Nú dónakallar stígi á stokk
og standi allir saman


Smalamennska

Íslenzka frelsið á fjöllum
ferðamenn teyga sem vín
En svo þurfi að smala þeim öllum
síðsumars, ....er ekkert grín

Vísur dagsins

þá fyrri má finna hér

Safnana ei sakna kann
Sæma þó að græti
Ég þjáist ekki eins og hann
af undirskriftablæti

Þá seinni má finna hér

Von er að Vigdísi sárni
verandi táknmynd þess alls
sem eltihrellirinn Árni
ástæður rekur síns falls

Færslurnar þarf að lesa svo samhengið skiljist

Tounge


Meiri maraþon vitleysan

Mér rennur blóðið til blóðs
og bara vil hlaupa til góðs
þótt visku og værð fengi í arf
þá vilji er allt sem að þarf

Því mamma er múslimavinur
og mér finnst ég vera svo linur
í hlaupinu hálfu nær dauður
hvílíkur asskotans sauður

---------------------------------------------------------------

Í stað þess að liggja í ljóðum
ég lært hefði af Kiljani fróðum
að ferðin sem aldrei er farin
er fall af þeim tíma sem í hana er varin

Og hjart' áföll hafa svo fengið
hálft fleiri en fylla sko mengið
sem héldu sinn hug stýra hönd
en hjartað það brást og þeir gáfu upp önd


Gylfi Ægis og gleðigangan

Hjá sumum siðamörkin teygð
sem segjast vera edrú,
og saka aðra um samkynhneigð
en sjálfir elska Jesú

Í gleðigöngu Gylfi fer
gott fannst yfirskynið
því bannað útí Eyjum er
að elska sama kynið

Ég viðurkenni vanmátt minn
að varist get ei hugsun um
Í Gay Pride göngu Halldór finn
og Gylfa í hommabuxunum

Tounge


RÚV-ið og ESB trúboðið

Þótt crewið inní E Ess Bé
ekki flúið geti nú
Og rúið trausti ríkis sé
RÚV-ið áfram boðar trú

En ríkisstjórnar stefnan er
að styðja ekki við þá trú
Og nema Palli sjái að sér
sængin hans mun útbreidd nú


Sjúskaður fjósamaður

Þótt birta engin berist inn
baðar sig í ljósinu
Framsóknar geyr garmurinn
Gunnar Brag' í  fjósinu
mbl.is „Sjúsk og subbuskapur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af Brynjari Níelssyni

Ef vekja pressu pistlar hans
pólitíska leiðni
alltaf biðja ótal manns
um afsökunarbeiðni

Ekki hef ég á því trú
að hér verði friður
Því allt sem Bjarni byggir nú
Brynjar rífur niður


Rollugreind Össurar

Um loforð Simma stendur styrr
stór er skuldavandinn
Össur "fyr" sem aldrei fyrr
orða skekur brandinn

Þótt oft við liði líkji dýr
og lítið úr því geri
Hann þekkir ekki yxna kýr
eða vakra meri

Hugaróra hefur elt
honum líður illa
engan strámann fékk'ann fellt
friði til að spilla

Að eiga við þá orðastað
aðferð er að fullu reynd
og skilja ætti Össur það
ef hann hefði rollugreind

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband