Færsluflokkur: Tækifærisvísur
28.5.2013 | 17:00
Ekkert einelti - bara meinsemi, öfund og illgirni
Víða hátt til högga reitt
Heiftin undir vakir
og þeir sem hafa brögðum beitt
bera af sér sakir
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2013 | 14:10
Af meintu gáfnafari Framsóknarmanna
Full af bulli birtist oft
bakkar aldrei sproki
Fljóði þjóðin þessum hvoft
þakkar ef hún loki
Enga lengur kænsku kann
kvíðir málum flóknum
Þunni Gunnar heitir hann
hlíðir kalli af Króknum
Ekki blekkir höfuð hans
hátt og fagurt enni
Singi Ingi í fríðum fans
fátt af viti kenni
Nú herja féndur formann á
fulllan enn í kinnum
Þótt Landvernd email fengi frá
fjögur hundruð sinnum
Eygló finnst mér af þeim bera
einörð bæði og virðuleg
Svona kona vildi ég vera
væri ég ekki fæddur ég
28.5.2013 | 03:18
Ég hálfvegis vorkenni Vigdísi
Þekkt er af frekju og fávísi
Fransóknarmaddaman hér
ég hálfvegis vorkenni Vigdísi
verandi eins og hún er
![]() |
Komið yfir vitleysingastigið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.5.2013 | 10:07
Yfirdordingullinn Össur
svigurmælin megn' ei fela
Og spuninn hans um Hillary
er Hégómi hins auma dela
![]() |
Ekki lengur eins og dordinglar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.5.2013 | 03:56
4. í stjórnarmyndun
að vonir okkar rætist
og lýðnum efni loforðið
svo landinn aftur kætist
2.5.2013 | 06:13
Drög að Stjórnarsáttmála
ef skatta lækka vildi
Og frumvarp vont um veiðigjöld
verður fellt úr gildi
21.4.2013 | 22:35
Hjóladólgarnir
Heitt er núna hamsi í
hjóladólga liði
ef ég á morgun mætti því
mest af öllu kviði
Á bílstjóranum brutu rétt
og bloggið hefur logað
En fyrst þeim þykir þetta frétt
þá er eitthvað brogað
Eins þótt liggi okkur á
æðrulausir verum
og bíðum meðan brunar hjá
breiðfylking á sterum
Um Álftanesið leiðin lá
leiddist einum dólið
en lenti á bíl sem beygði hjá
og beyglaði smá hjólið
Hérna verið hafið þið
í háði sundur dregin
Fáráðlingar fastir við
fótstig báðum megin
![]() |
Ók í veg fyrir hjólreiðafólk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt 22.4.2013 kl. 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
23.2.2013 | 17:28
Vor ei meir
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2013 | 16:53
98% af litlu er lítið
hvort á annað stara
Þau hefðu betur bæði hætt
en Björn sé bara vara
![]() |
Katrín fékk 98% í formannskjöri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2013 | 15:34
Einlæg ósannindi
engar þakkir kunni
Lyginni ei leyna kann
í líkams-tjáning-unni
![]() |
Gæfa að eiga Katrínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |