Af meintu gáfnafari Framsóknarmanna

Full af bulli birtist oft
bakkar aldrei sproki
Fljóði þjóðin þessum hvoft
þakkar ef hún loki

Enga lengur kænsku kann
kvíðir málum flóknum
Þunni Gunnar heitir hann
hlíðir kalli af Króknum

Ekki blekkir höfuð hans
hátt og fagurt enni
Singi Ingi í fríðum fans
fátt af viti kenni

Nú herja féndur formann á
fulllan enn í kinnum
Þótt Landvernd email fengi frá
fjögur hundruð sinnum

Eygló finnst mér af þeim bera
einörð bæði og virðuleg
Svona kona vildi ég vera
væri ég ekki fæddur ég


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband