Færsluflokkur: Tækifærisvísur

Skjótt skipast vindar í pólitík

Aleinn flokksins byrðar bar
Björn er varla glaður
Hann sem áður yfir var
er orðinn stýrimaður

Viljugur sér valdi veg
ei vorkenni ég honum
þó vistin verði voðaleg
hjá Vinstri-Grænum konum


mbl.is Björn Valur kjörinn varaformaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfhverfur lýðskrumari kveður

Frelsinu er fráhverfur
flest hefur á hreinu
Segist bara sjálfhverfur
og sjá ekki eftir neinu
mbl.is Sér ekki eftir neinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rumpulýður úr Reykjavík

Á þingi sitja sextán grey
Sjálfstæðis í flokki
Sitt á boða brutu fley
og Birgir enn í sjokki

Glitni átti ágjarnt lið
í augum hafði glýju
Ávaxta réð ekki við
Illugi, Sjóð 9

Skarð er fyrir skildi fleinn
úr skaftinu er hrokkinn
Grandalaus má Gulli einn
gjalda fyrir flokkinn

Aðeins sá sem eitthvað á
er þeim einhvers virði
Blöndal lúinn leita má
að lausu fé með hirði

Á fjórða ári flokkurinn
fann að lokum spyrnu
er Ólöf lætur lykil sinn
í lófa Hönnu Birnu


Rumpulýður úr Kraganum

Erfðatæknar gæða gen
í getnaði fram kalla
Nú einrækta má Bjarna Ben
og bæta okkur alla

Í ríki karla konurnar
krossinn mega bera
Örlög Gerðar Gunnars var
gluggaskraut að vera

Vituð þér að næsta nafn
nefið gerir ljótann?
í einræðum við Ingva Hrafn
alltaf ver hann kvótann

Rigsar um og rífur kjaft
Ragnheiður það getur
Góðan tíma hefur haft
hún til þess í vetur

 


Rumpulýður að sunnan

Ýmsum gerði lífið leitt
lét út ganga sprokið
Árni skuldar engum neitt
hans afplánun er lokið

Frjálshyggjan er froðusafn
flest er þar til sölu
Nú Elín vill fá annað nafn
og aðra kennitölu

Orðaharkið tekur toll
og teygir ei á hrukkum
En Unnur Brá með barnakoll
ber af öðrum skrukkum


Rumpulýður að norðan

Komið hefur víða við
vöndinn kyssir bláa
Kristján sleikir slorgatið
á Samherjanum Máa

Því lýgur núna lygakór
að lífskjörin þeir bæti
ekki tókst þó Tryggva Þór
að tryggja eigið sæti


Rumpulýður að vestan

Fyrstur kemur Einar Ká
kallinn grár á vanga
stýrir honum höndin blá
er hefur fingur langa

Á eftir honum Ásbjörn inn
aumingjanum svíður
að komist yfir kvótann sinn
kommúnistalýður


Svínastían Ísland

Í febrúar guggnaði Geir
gafst upp og gat ekki meir
Til Landsfundar kjörinn var kjarni
og krýndur til formanns var Bjarni

En sá sem er valinn til valda
er varla sá sam' og menn halda
Fortíð hins flekklausa manns
er falin í fallinu hans

Þótt sannleikur sjöllum ei henti
við sannanir eigum á prenti
og allt sem að sögðu þeir forðum
er samsafn af ómerkum orðum

En flokki sem finnst það sín stefna
formannsins gamla að hefna
Þeim hrunið er horfið úr huga
og hálfsannleik láta sér duga

Og allt sem að gert var af Geir
greyjunum dugar ei meir
Vor vegur ei stjörnum er stráður
en stefnan sú sama og áður

Meðan svelta hér síhungruð börn
Sjallarnir pakka í vörn
Þeim finnst það víst feiki nóg fórn
að fá ekki að vera í stjórn

Og ábyrgð á engu þeir bera
allt er svo gott sem þeir gera
Réttlætið innvígt og múrað
annarra skít ekki skúrað

Þrasa um þetta ei þarf
enda þáðum við icesave í arf
En þegar um Alþingi það
þrábað að samþykkja bað

Svaraði Bjarni af bragði
barði í borðið og sagði
"Oss binda mun icesave í hlekki
auðvitað semjum við ekki"

En strax og frá Buckheit fékk boðun
Bjarni vill skipta um skoðun
af andstöðu liðið má láta
og lélegum samningi játa

Enn ríkir alls enginn friður
allt virðist stefna beint niður
Og spurning hvort Steingrímur standi
við stýrið á Nýju Íslandi

 


Bréf til Bjarna

1. febrúar 2008

Kæri sonur!


Nú skaltu skjótast sem elding
með skjölin til Lárusar Welding
Frá Glitni, með milljörðum mörgum
Milestone og Sjóvá við björgum

En bankanum búinn er skaði
bréfin því seldu með hraði
Svo á okkur alls ekki bitni
allsherjar gjaldþrot hjá Glitni

Þinn elskandi faðir,
Benedikt

 

 


Grímur Atla og þjóðremban

Ef setur þig á háan hest
er hollt að muna
að heimskur þræll oft þruglar mest
um þjóðrembuna

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband