Færsluflokkur: Tækifærisvísur
18.1.2013 | 10:24
Vilborg Arna er hetja dagsins
Á gangi frá því fyrir jól
fékkstu skitu og lærið kól
Í kulda og vosbúð bjóst þér ból
og barðist ein á Suðurpól.
Nú útrásar og auðshyskis
sem einskis vant er far' á mis
býðst að selja gull og glys
og gef' á lifsspor punktur is
![]() |
Vilborg komin á suðurpólinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2013 | 09:50
Úr kommóðunni á Útirauðsmýri
Ef mátt fyrir önnum og erli
endaðu Jóhanna plís
allt þetta umsóknarferli
en ekki það setja á ís
23.12.2012 | 15:15
Kveðja til Steingríms J.
Um árangurinn þusið þið
en þegar allt um þrýtur
þá sam' er hvað þið hamist við
hér er bara skítur
Árangurinn enginn er
um ekkert er að þrefa
þú ölmusuna ætlar þér
en öðrum skít úr hnefa
Við heitingum þér hlífa skal
og hætta öllum orðaleikjum
Bið að heilsa Birni Val
og bóndanum á Brúarreykjum
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2012 | 17:16
Skötukvæði á Aðventu
Þessi vísa varð til við lestur þessa bloggpistils. Ekkert sérstaklega jólaleg en er tileinkuð unnendum Vantrúar, Siðmenntar og skötunnar. Sama lyktin af þessu öllu
Að afneita orðum síns Herra
um Ésúbarn liggjamd' í jötu
er verjand' en hitt er þó verra
að vilj'ekki smakka á skötu
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2012 | 23:13
Lagatæknar
lögfræðingafól og lækna
er bjánafélag Bifurrastar
brautu skráir lagatækna
21.11.2012 | 19:01
Inspired by Gísli
Gísli Ásgeirs er beittur eins og venjulega í nýjasta pistlinum. Því datt mér í hug þessi vísa:
Saga þeirra þykir ljót
þó að halli orði
en ekki mælti Bjarni mót
meintu þjóðarmorði
16.11.2012 | 18:43
Ð
Það stendur ekki steinn við stein
í steypunni hjá Stebba Páls
Að íslenskan sé ekki hrein
og uppruni vors móðurmáls
Í nýrri bók að nauðga henni
nennir Stebbi Páls
en Ð er ekki eina kenni
íslensks máls
![]() |
ð er ekkert íslenskur stafur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2012 | 16:28
Gálgahraun
að enginn er vinur í raun
Þegar vitfirrtir verkfræðingar
vegleggja Gálgahraun
Tækifærisvísur | Breytt 13.10.2012 kl. 09:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2012 | 19:16
Vigdís Hauks
Ég hagfræði alls ekki skil
Ég er stjórnlaus og stíg ekki í vitið
Ég stjórna samt Íslandi vil
27.9.2012 | 18:42
Áhyggjulaust ævikvöld Jóhönnu
úr verki henni lítið varð
Árangurinn eftirlaun
uppá rúman milli-jarð
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)