Færsluflokkur: Tækifærisvísur

Örugglega sjálfstæðismaður

Á Garðvegi gripu mig bullur
og gáfu mér alls engan frið
en heima hvort keyri ég fullur
kemur þeim alls ekki við
mbl.is Drukkinn á dráttarvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki benda á mig

Það er svo margt sem miður fer
meðal regluvina
Enginn neina ábyrgð ber
allir benda á hina

Sendum fjór-flokkinn heim

Laust er fylgi flokka nú
flestir trausti rúnir
Í flaustri hrekja frá sér hjú
að hausti verða allir flúnir

Ef kaustu óvart einn af þeim
sem aldrei Flokkinn munu svíkja
Í vor við senda verðum heim
viðundrin sem ekki víkja

Flokksformaðurinn

Flís í auga formanns er
á framavegi hálum
og krabbameins svo kennir sér
klúðrar þegar málum

Þyrnigerður

Þyrnigerður þykir hér
þrusugóður penni
Happafengur fyndist mér
að fá að  ríða henni

Valdhroki og valdagræðgi

Einn á báti Ömmi sprænir
aldrei nær hann landinu
og valdasjúkir vinstri grænir
verða að kyngja hlandinu

Raunir Sægreifans

Yfirvaldið illgjarnt hér
aðför að mér gerði
sagði að aflann sjálfum mér
seldi á undirverði

Deloitte uppí dans ég bauð
og Dalvík beitti klækjum
Í höftum þurfti að þvo minn auð
í þýzkum fyrirtækjum

Mætir mér Már Guðmundsson
ef mótmælum ég hreyfi
Því ég á Fischfang Union
ég er Þorsteinn greifi

 

 


"Sælir eru hógværir"

Andskotinn á ennþá von
enn mun gaman kárna
ef Stefán Einar Stefánsson
styður Sigurð Árna

 

                                    "Sælir eru hógværir" Matt 5.1-12


Í tilefni biskupskjörs

 Nú er ljóst hverjir bítast um biskupsembættið í vor.  Í tilefni af því birti ég hér smá trúarlega hugleiðingu í bundnu máli

Svörtum biskup bolað var
burt í miðri messu
Andskotinn á ekkert svar
enn við tafli þessu

Miður fellur mér í geð
sú mynd sem upp er dregin,
að áfram troðist átta peð
og öll nú sömu megin.

Þeir sem vildu vera með
vissu öðrum fremur
að breyzt í biskup getur peð
í borð ef fyrst það kemur

En Þjóðinni er þvert um geð
að þola þessa byrði
Því alltaf verður peðið peð
og prestsverk lítils virði

Að leggja af hér Lúters sið
líkar betur flestum
Þá allavega fengjum frið
fyrir ríkisprestum


Aum er sú andlega heift

Aum er sú andlega heift
er í ásjónu krata er greypt
Þeir Óla ei þola
og vilja vitstola
af stallinum verð'onum steypt

 

Tounge


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband