Færsluflokkur: Tækifærisvísur
8.2.2012 | 14:14
Davíð Þór og Freud
Fleyg urðu orð Davíðs Þórs Jónssonar þegar hann kallaði Sóleyju Tómasdóttur "leggöng".
En hún hafði áður sakað hann um að móðga sig á kurteisan hátt. Þá varð þessi vísa til:
Kurteis sig klæðir úr buxunum
kvalinn af freudiskum hugsunum
En Sóley kvaðst svipt öllum löngunum
sökin var--grjóthrun í göngunum
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2012 | 13:00
Létt hjal
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.1.2012 | 02:38
Að gefnu tilefni
Þessar vísur birtust fyrst á blogginu hans Gísla Ásgeirs og eru svona tækifærisvísur eins og flest af mínum kveðskap. En til að halda þessu saman á einum stað þá birti ég þær hér líka. Ef smellt er á vísurnar opnast viðkomandi færsla á Málbeininu.
Frúin ekki kætast kann
þótt kallinn veifi gandi
Því kvinnu sinni klórar hann
og káfar svo á Brandi
Lífið hefur hérum bil
hitt í réttar skorður
Forsetinn var fenginn til
að festa nokkrar orður
Þeir sem hlutu hafa hæst
hampað sínu sýsli
Þér gengur bara betur næst
í biðröðinni Gísli
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 02:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2011 | 16:38
Jóhönnuraunir
Þótt fólkið hér sé löngu leitt
á lyginni um erlent fé
er lausnarorðið aðeins eitt
umsóknin að ESB
Undir erlend yfirráð
okkur vill hún fela
Svo að ríkum gefist ráð-
rúm hér öllu að stela
Þrautagangan þyrnum stráð
þrællinn illa barinn
Nú Jóhanna er hædd og smáð
hennar tími er farinn
Áfram fetar eyðislóð
undir breima kattakór
Kella orðin ellimóð
að elta það sem kom og fór.
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2011 | 17:22
GMS
og órótt geðið sönnun þess,
að æruskertur auðkýfingur
er að senda SMS
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2011 | 15:10
Þingeyskt loft
Í tilefni fréttar á RUV, að Þingeyingar hafi gengið út af fundi með fjármálaráðherra, þá datt mér þessi vísa í hug:
Hreinar ýkjur heyrum oft
að hitt og þetta sé í hnút
Þó að bara þingeyskt loft
þurfi sér að hleypa út
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 15:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2011 | 08:16
Lífsins skák
Á skákborði lífsins er leikið á víxl
en leikfléttu oft reynt að stjórna.
Og guðlasti leikmönnum borið á brigsl
ef biskupum kjósa að fórna.
Meðan íslenskir prestar í hlutverki peðs
í pattstöðu skáka nú bara.
þeir halda sitt hlutverk að gera til geðs
geistlegum yfirboð-ara
Tækifærisvísur | Breytt s.d. kl. 09:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2011 | 15:44
Ó mín hrunkvalda þjóð
Hneykslast nú hrunkvalið liðið
og heimtar að brotið sé blaðið
þótt sjálfu í rassinn sé riðið
og réttindin troðin í svaðið
Samkennd með svívirtum konum
sýnum í huggunarorðum
Kirkjuna vítum og vonum
að vandi sig betur en forðum
Biskupnum ber því að víkja
berandi ábyrgð hér mesta
svo friður í framtíð fá ríkja
finna þarf syndlausa presta
8.10.2011 | 13:03
Í hópi 300 bestu
Í Háskóla Íslands er einvalalið
árangur vitni því ber um
og þrátt fyrir Hannes og íhalds hyskið
í hóp þeirra bestu við erum
![]() |
Hátíðahöld HÍ ná hámarki á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tækifærisvísur | Breytt 9.10.2011 kl. 07:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2011 | 01:57
Hægri byltingin
beitt er tækni slyngri
því pelsi klæddar kerlingar
klingja sínu glingri
Eva Hauks er mikil baráttukona fyrir mannréttindum hælisleitenda og alls kyns minnihlutahópa. Hún birti á vefnum sínum álagakvæði ætlað eyrum innanríkisráðherrans. Þá varð til þetta svar í orðastað Ögmundar.
Engan hef ég órétt beitt
og allra harma sefa
heldur finnst mér hátt sé reitt
til högga elsku Eva
Því mér endist aldrei tóm
orðstý minn að fegra
Í skiptum fyrir skapadóm
..skaltu fá þinn negra