Jóhönnuraunir

Þótt fólkið hér sé löngu leitt
á lyginni um erlent fé
er lausnarorðið aðeins eitt
umsóknin að ESB

Undir erlend yfirráð
okkur vill hún fela
Svo að ríkum gefist ráð-
rúm hér öllu að stela

Þrautagangan þyrnum stráð
þrællinn illa barinn
Nú Jóhanna er hædd og smáð
hennar tími er farinn

Áfram fetar eyðislóð
undir breima kattakór
Kella orðin ellimóð
að elta það sem kom og fór.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband