Færsluflokkur: Tækifærisvísur

Þingsetningin í bundnu máli

Forsetann við fáum sjá
fylla útí skjáinn
en hvatvís Dorrit hvarflar frá
og hverfur út í bláinn

Þótt löggan setji svip hér á
og sig í hættu leggi
ýmsir fleiri en Árni fá
fleiður undan eggi

Þingið þráir virðingu
þjóðar, hlaðið dreggjum
En bleyður bakvið girðingu
bara kasta eggjum


Ótímabær andlátsfrétt

Sumum þætti mikið misst
meir þó aðrir lasti
Árna Þór ef andaðist
út af eggjakasti

Vísa dagsins

Vísa dagsins er tileinkuð Gylfa Arnbjörnssyni og baráttu hans gegn verðbólgunni!

Kratar hafa kæki ljóta
og krónu illri kenna um
ef fíflin sig í fótinn skjóta
í flóknum kjarasamningum


Ráðherraræfill á plani

Að gaspra er gamall vani
og gildir einu
Þótt sé ráðherraræfill á plani
ég ræð ei neinu
mbl.is Stórskotaliðsárásir forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um einkavæðinguna, Framsókn og Teit Atlason

Um væðingu einka og völdin
var vélað við grillið á kvöldin
Og Framsóknarmenn feng' að stela
frá ríkinu eignum og fela
sér sjálfum til sýslu og eignar
samkvæmt línum sem þá voru dregnar

Nú Kögunarforstjórinn kærir
og kvartar við Teit, sem hann ærir
og segir hann setj' á sig bletti
ef skrifi um svik hans og pretti
og upplogna ákæruliði
auminginn vill vera' í friði


Hin ævarandi skömm biskupsins

Nú kirkjan er komin í vanda
því Karl lét á refsingu standa
gegn biskupi, klerki og kempu
sem klæddur var skósíðri hempu

Og áfram lét Ólafi líðast
að áreyta stúlkur og níðast
á góðum og guðhræddum börnum
sem gátu ekki komið við vörnum

Svo ranglega ríkti hér friður
reynt var að þagga allt niður
Sekt biskupsins þótti þeim hæpinn
þvi að  prófastar blessuðu glæpinn

Og áfram því stóð þar í stafni
og strauk þeim í frelsarans nafni
biskup, um barma og rassa
barna sem hann var að kjassa
- barna sem hann átti að passa -

Ef allt hefðu haft upp á borðum
Hjálmar og Karl hérna forðum
og kennd látið réttlætis ráða
nú reka ei þyrftum þá báða

 


Framsóknarmenn eru líka fól(k)

Í hálftíma háflvita sagði
Höskuldur, rangt eftir haft
En forseti brást við af bragði
og bjölluna barði ákaft

Ásta er einræðispíka
og óhæf í forsetastól
Því þarf að losna við líka
liðið sem völd henni fól

Mörgum varð ljóst fyrir löngu
að löggjafinn ónýtur er
En þjóðin hún stendur í ströngu
í streðinu bjargar hver sér

Og okkur, sem frelsarann forðum,
finnst mörgum mikilvægt enn
að tala við alla með orðum
og einnig við framsóknarmenn

LoL

 


Eiður og Útvarp Saga

Á blogginu Molar og Málfar
á miðlana skotið er fast
svo fer allt brand í og bál þar
og brjálæðis Eiður fær kast

Hann Arnþrúði þykist ei þola
þótt hlusti í laum' hana á
Meðan fjallar um málfar og mola
meyna hann þráir að fá

En Arnþrúður þolir ei heldur
þvílíkan hallærisgaur
sem undir sé sökina seldur
að sníkja sér framfærsluaur


Kanarífuglinn hennar Jóhönnu

Kanarífuglinn af kellu
hvattur á hættunnar slóð
Hrannar B. austur á Hellu
hnípinn með ífóninn stóð

Askan um augu hans flökti
og ofan í óvitin smaug
Skelfdur á símanum slökkti
er skúmur á rúðuna flaug

Við illan leik austur að Klaustri
að endingu komst þetta skinn
Því ferðin var farin í flaustri
en feigur hann er ekki um sinn


Heiðríkja hugans

Landið úr rústunum reisti
ráðstjórnin leikandi létt
Ég bara trúi og treysti
og tek því sem að mér er rétt

Halo


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband