Kveðja til Steingríms J.

Um árangurinn þusið þið
en þegar allt um þrýtur
þá sam' er hvað þið hamist við
hér er bara skítur

Árangurinn enginn er
um ekkert er að þrefa
þú ölmusuna ætlar þér
en öðrum skít úr hnefa

Við heitingum þér hlífa skal
og hætta öllum orðaleikjum
Bið að heilsa Birni Val
og bóndanum á Brúarreykjum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband