Sorglegt

 Frétt af mbl.is

Lögreglan girðir þinghúsið af
Innlent | mbl.is | 17.1.2011 | 14:22
Lögreglumenn fyrir framan þinghúsið í dag.
Lögreglan hefur girt af þinghúsið við Austurvöll
en búið er að boða til mótmæla við Alþingi kl. 15,
þegar þing kemur saman á ný. Lögreglan segist vilja
vera við öllu búin. Þetta sé gert til að tryggja
vinnufrið lögreglu og öryggi fólks.

Þetta er þeim mun sorglegra af því þetta þarf ekki að vera svona.

Ef stjórnvöld hverju sinni gerðu meira af að hlusta á þjóðina þá væru menn sáttari. Það vita allir að enginn fær öllu sínu framgengt en þegar ríkisstjórn hlustar ekki heldur fer sínu fram í veigamiklum málum í trássi við þjóðina þá er hún að efna til ófriðar og átaka. Ekki mótmælendur

Þessi stjórn hefur tvo kosti um að velja:

1. Semja frið við þjóðina og endurnýja stjórnarsáttmálann
2. Slíta samstarfinu og leyfa nýjar kosningar.

ESB umsóknin og Icesave hefur klofið þjóðina í fylkingar. Þeim málum þarf að slá á frest.
Vinna þarf betur í skuldamálum heimila og setja fjármálafyrirtækjum skýrar reglur
Og að endingu þarf að stokka hér upp lífeyrissjóðakerfin. Þetta eru þau mál sem ríkisstjórnin þarf að taka til endurskoðunar. Hún nýtur lítils stuðning kjósenda hvað svo sem úrslitum síðustu kosninga líður og það er ólýðræðislegt af Jóhönnu Sigurðardóttur að reyna ekki betur að taka til tillit til krafna almennings. Við eigum ekki að þurfa að berja tunnur og kasta eggjum að óeirðalögreglu sem hýmir á bakvið girðingu

Læt svo að endingu fylgja með stöku lítið breytta sem birzt hefur áður á blogginu mínu 

Ríkisstjórnar laskað lið
lýðsins ræði ekki skildi
Við sína þjóð að semja frið
Samfylkingin ekki vildi 


mbl.is Lögreglan girðir þinghúsið af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband