10 tillögur að nýjum Stjórnlagaþings lögum

Hæstiréttur hefur talað og nú liggur fyrir vilji meirihluta Alþingis að þjóðin fái sitt Stjórnlagaþing.
Því ber að slíðra sverðin og sameinast um að setja ný lög um kosningar til stjórnlagaþings.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur varpað af sér lambsgærunni og komið til dyranna eins og hann er klæddur.
Við skulum víst halda Stjórnlagaþing í trássi við vilja hans. Sjálfstæðisflokkurinn heldur sig geta farið sínu fram og þvælst í vegi fyrir lýðræðisumbótum. það er rangt.

  1. Fyrri lög alþingis voru meingölluð eins og óþarft er að hamra á. Auðvelt ætti að vera að bæta úr þeim formgöllum sem hæstiréttur benti á en það er ekki nóg.
  2. Alþingi má ekki skerða sjálfstæði stjórnlagaþings með beinum fyrirmælum og öðrum afskiptum af skipulagi starfsins. Fulltrúarnir eiga að ráða sinni vinnu sjálfir.  
  3. Ekki má takmarka starfstíma stjórnlagaþingsins, það verður að fá þann tíma sem það þarf
  4. Kosnir verði 63 fulltrúar á stjórnlagaþing og taki kjörgengi mið af reglum um forseta lýðveldisins ( reynslulaust fólk og krakkar undir tvítugu eiga ekkert erindi inná svona þing)
  5. Stjórnlagaþingið fari fram í húsakynnum Alþingis og nýti alla aðstöðu þess. Óþarft er að leggja útí tvöfaldan kostnað. Útlit er fyrir að Alþingi verði komið í sumarfrí þegar stjórnlagaþing getur hafið störf og dragist starf þess langt fram á haust eða lengur þá er hægt að samræma þingfundi Alþingis og Stjórnlagaþings þannig að ekki rekist á hvort annað (þegar Alþingi tekur sér frí vegna starfsdaga og kjördæmavikna og hvað allt það heitir þá taki Stjórnlagaþingið yfir fundarsali og aðra aðstöðu)
  6. Stjórnlagaþingsvinna verði þegnskylduvinna.  Þeir sem nái kjöri missi ekki í neinu þau laun og réttindi sem þeir hafa hjá sínum vinnuveitendum og óheimilt verði að segja þeim upp starfi. Ef kjörinn fulltrúi er án atvinnu skal honum tryggð laun úr ríkissjóði samkvæmt framfærsluviðmiði.
  7. Kosning til Stjórnlagaþings verði rafræn og þeir sem ekki geti eða vilji kjósa rafrænt fái að taka með sér aðstoðarmann ef þeir þurfa við utankjörfundar atkvæðagreiðslu
  8. Stjórnlagaþing skili af sér heildstæðri stjórnarskrá sem borin verði upp í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hver grein verði þannig borin undir þjóðina til samþykktar eða synjunar.
  9. Alþingi hafi aðeins heimildir til að fjalla um þær greinar stjórnarskrárinnar sem þjóðin samþykkir ekki
  10. Hin nýja stjórnarskrá svo samþykkt af Alþingi verði að lögum án þjóðaratkvæðagreiðslu

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ekki svo galið. Ég var einmitt að hugsa þetta með vinnu sem fólk hafði áður en þau fóru í þetta en það hefði átt að tryggja það að þau gætu gengið í sömu störf. Þetta er eina rétta og alþingi á að fjalla sjálft um þetta og kannski taka einn lið á ári.

Valdimar Samúelsson, 26.1.2011 kl. 16:06

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

takk fyrir það Valdimar

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 26.1.2011 kl. 17:46

3 Smámynd: Pétur Harðarson

Mér líst vel á þessar tillögur, sérstaklega hvað varðar starfstímann og þjóðararkvæðagreiðsluna. Mjög gott!!

Pétur Harðarson, 26.1.2011 kl. 18:05

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Takk Pétur og takk fyrir innlitið.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 26.1.2011 kl. 18:10

5 Smámynd: Björn Birgisson

Seinn er ég til svars hér, enda hægur slóði. Þessar pælingar þínar eru til fyrirmyndar og hér er margt bitastætt. Þakka þér. Án góðra hugmynda gerist fátt annað en vont eitt.

Björn Birgisson, 26.1.2011 kl. 22:03

6 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Takk fyrir innlitið Björn, jamm við megum ekki gleyma að benda á lausnir þótt mikið sé að gera í niðurrifinu

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 26.1.2011 kl. 22:15

7 Smámynd: Björn Birgisson

Segðu!

Björn Birgisson, 27.1.2011 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband