Ögmundur með allt á hreinu

Það er ástæða til að hrósa Ögmundi Jónassyni fyrir að sinna starfi sínu í samræmi við lög og reglur og í þágu þjóðarinnar.  Það er ekki sjálfgefið, eins og við höfum orðið vitni að í gegnum tíðina. Ögmundur hefði getað látið undan þrýstingi frá Samfylkingarþingmönnum og ráðherrum og komist upp með það í nafni ráðherraræðisins.  En sem betur fer áttaði hann sig á því hversu alvarleg atlagan var að sjálfstæði Íslands og byggði úrskurð sinn á langtímahagsmunum þeirra sem þetta land munu byggja en ekki skammtíma gróðasjónarmiðum landsölufólks. Næsta skref ráðherrans hlýtur nú að vera að girða fyrir allar frekari undanþágur í framtíðinni og afnema þessa heimild ráðherra í eitt skipti fyrir öll. Það er ekki ásættanlegt að slíkt vald sé í hendi eins einstaklings.  Alþingi Íslendinga ber skylda til að axla sína ábyrgð á stjórn landsins með fullnægjandi lagasetningu án þeirra reglugerða- og geðþóttaheimilda til ráðherra, sem hefur orðið eins konar regla í lagasetningargerðinni en ekki undantekning. Ef hér hefði verið stunduð fagleg lagasetning þá þyrftum við ekki að sækja ráðherra til saka vegna afglapa í starfi. Við þurfum ekki að innleiða EES reglurnar án fyrirvara. 

http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/27386


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Flottur!

Aðalsteinn Agnarsson, 25.11.2011 kl. 14:11

2 identicon

Hef eftir manni sem búið hefur í Kína í 10 ár. Það er ekki til neitt sem heitir kínverskur milljónamæringur.
Þeir sem kallast milljónamæringar, eru framlengingar á flokksapparatinu.  Stjórna vissum sviðum.

Ólafur Sveinsson (IP-tala skráð) 25.11.2011 kl. 15:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband