Það er öllum frjálst að gagnrýna

Persónulega finnst mér þessi kvörtun jafn virtrar stofnunar og Wiesenthal stofnunarinnar óskiljanleg í hvaða samhengi sem er. Ég hallast að því, að einhver íslenskur öfgazionisti, eins og Vilhjálmur Örn, sé að nota Simon Wiesenthal til að koma höggi á íslenska trúarhefð. Lestur Passíusálmanna á föstunni er löngu orðin hefð og það þarf sérstakt ofstæki og paranoiu til að lesa út úr þessum skáldskap eitthvert sérstakt gyðingahatur sem færa megi upp á nútímann.  Þeir sem lesa þennan texta sjá að hann er bein tilvitnun í texta Biblíunnar á þeim atburðum sem Biblían segir frá. Hvort þessir atburðir hafi yfirhöfuð átt sér stað er allt annað mál. En ég vona bara Islendinga vegna að Páll Magnússon svari þessu bréfi á kurteisan hátt.  því miður þá á hann það til að svara gagnrýni með dónaskap og ruddahætti.  Sérstaklega ef gagnrýnin kemur frá ellilífeyrisþegum og þeim sem liggja vel við höggi
mbl.is Kvörtun um sálma hæpin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband