25.11.2012 | 17:48
...en ætlar að sigla án skipstjóra
Það fer alltaf um mig kjánahrollur að lesa svona froðusnakk. Hvað þýðir það að valinn maður sé í hverju rúmi ef skipstjórann vantar? Á þessum 4 árum sem flokkurinn hefur verið í stjórn hefur saga hans einkennst af misráðnum og beinlínis þjóhagslega skaðlegum ákvörðunum. Nægir að nefna Icesafe, Sjóvá, Spkef, Spron, Hörpu, Ármót, Vaðlaheiðargöng, HS Orku og aðildarumsóknina að ESB. Allt eru þetta stórmál sem hefðu nægt til að fella hvaða stjórn sem er hvar sem er í heiminum nema hér á Íslandi! Og svo heldur kjáninn hún Katrín að fleyið sé skipað einvalaliði. Hvað ætli Björn Valur segi um það
Valinn maður í hverju rúmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.