Framsókn, Píratar og VG

Eins og landið liggur í hinu pólitíska landslagi þá finnst mér líklegast að þessir 3 flokkar muni mynda hér næstu ríkisstjórn.   Björt Framtíð er búin að mála sig út í horn með einstrengingslegri afstöðu til ESB aðildarinnar.

Ólíklegt er að Sjálfstæðisflokkurinn vilji taka sæti í ríkisstjórn undir forystu Framsóknarflokks þótt þeim stæði það til boða.  Og ef fer sem horfir að VG og Píratar nái hvor um sig 5-6 þingmönnum þá nægir það til öruggs meirihluta miðað við að Framsókn nái 22+

Málefnalega sýnist mér að þessir flokkar eða framboð geti vel náð saman um brýnustu verkefni sem bíða nýrrar ríkisstjórnar.  Þar mun bera hæst úrlausn á skuldavanda heimilanna og mótun efnahagsstefnu án aðildar að ESB og upptöku evru.

Þó að ESB aðildin hafi ekki orðið kosningamál þá mun afstaðan til þeirrar aðildar skipta sköpum í hverjir munu vinna saman eftir kosningar.  


mbl.is Meiri líkur á vinstristjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ef það leyndust villikettir í VG..... hvernig eru þá Píratar.

Gangi XB vel að smalla saman köttum ef þetta verður veruleikinn.

Sleggjan og Hvellurinn, 12.4.2013 kl. 07:51

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Við vitum hvar Birgitta, Aðalheiður og Smári standa og fyrir hvað þau standa.  Það verður ekki vandamál.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 12.4.2013 kl. 07:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband