Gísli Marteinn gangi í Framsóknarflokkinn

gisli_marteinn_baldursson-150x150.jpgSjálfstæðisflokkurinn hefur greinilega hafnað honum sem næsta borgarstjóraefni flokksins í Reykjavík.  Þess vegna á Gísli Marteinn að bregðast strax við og bjóða Framsóknarflokknum krafta sína í næstu kosningum.  Gísli ætlar að verða atvinnupólitíkus þegar hann verður stór og hlýtur sem slíkur að róa á gjöfulli mið en borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna er.  Enda sagði Gísli Marteinn skilið við hinn harða kjarna flokksins á dögunum, þeim sama, sem nú hefur sett hann út í kuldann.  Hann hlýtur því að vera að hugsa sitt mál enda stutt í næstu sveitastjórnarkosningar.  Og Gísli með sitt nám í skipulagsfræðum og óljósu skólagöngu eins og Sigmundur Davíð, ætti að eiga samhljóm með hinni nýju Framsókn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband