Ámælisverð stjórnsýsla vegamálastjóra

Vegamálastjóri fer með stjórnvald og ber því að gæta vel að lögmæti þeirra ákvarðana sem hann tekur.  Vegagerð um Gálgahraun virðist dæmi um gerræði embættismannakerfisins gegn almennum borgurum. Sama viðhorf virðist einnig ríkja meðal stjórnar Landsnets svo því sé haldið til haga.

Rök þeirra sem vilja ekki, að ráðist sé í þessar groddalegu framkvæmdir í Garðabæ ættu að vera stjórnvöldum þörf áminning um að sýna almenningi meiri virðingu þegar farið er af stað með framkvæmdir sem eru kostaðar af almenningi.  Þótt Gunnar Einarsson sé bæjarstjóri Sjálfstæðismanna í Garðabæ þá á hann ekki þetta land sem ætlunin er að eyðileggja með veglagningu. Landið er eign allra íbúanna og sá hluti sem er friðlýstur tilheyrir náttúrulega okkur öllum og afkomendum okkar.  Þetta þurfa menn sem taka ákvarðanir um um óafturkræfar breytingar á umhverfi okkar alltaf að hafa í huga.

Nýi vegurinn er ekki nauðsynlegur með tilliti til almannahagsmuna.  Vel er hægt að notast við gamla veginn um ókomin ár. Þarna er verið að fara að vilja örfárra lóðaeigenda þvert á almannahagsmuni.

Þetta verður stoppað með illu segja Hraunavinir.  Það er líklegt að fleiri muni fúsir að leggja þeirri baráttu lið.


mbl.is Stöðva framkvæmdir með öllum ráðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband