Jóhannes Laxdal Baldvinsson
Fyrrverandi áhugamaður um frjálst þjóðfélag. Núverandi áhugamaður um spillingu
Og vegna þess að ég er öllum óháður, þá óska ég ekki eftir að komast í bloggvina sambönd. Öllum vinabeiðnum verður því hafnað. Vinsamlega ekki taka það persónulega.
Þeim sem vilja hafa samband er bent á póstfangið, jlaxdal@internet.is
2. september 2013 kl. 21.17
Við femínistarnir stöndum saman:
Frækin ýmsa hefur háð
hildiog unnið marga bráð,
vísur kveða víst því skal
um veiðiklóna Lilliendahl.
Ég lofa hennar fimiog frægð,
fegurð, þokka, vit og slægð,
en allra mest ég mæri þó
hve marga dónaí svaðið dró.
Upp úr viðbjóð illum fress
oft hún veltir kát og hress,
og gamla hruma fauska fús
fer með eins og læða mús.
3. september 2013 kl. 8.58
Undir taka ekki mér
allar sýnast fúsar
Þótt Jósefína jarði hér
Jón í líki músar
Af Háskólanum heimta svar
hverju það svo þjóni
Að hafa megi Hannes Þar
en hafna beri Jóni
Ekki margir fylla flokk
sem finnst að Hildi gaman
Nú dónakallar stígi á stokk
og standi allir saman
:)
3. september 2013 kl. 21.59
Mest að gamni að litlum körlum læður leita
og ýmsar skrámur oft þeim veita
en einu gildir hvað þeir heita.
Ef femínistar á þá hvessa aðeins róminn.
með siginn berja larð þeir lóminn
ljúft er blóðiað væta góminn.
Kannskiað Hildur Hannes hremmi næst í klærnar
ljúfu þeli þvæ ég tærnar
þó að sofniá honum flærnar.
4. september 2013 kl. 9.23
Lítilsigldar læður leita bráðar
engum manni eru háðar
enda ævi einar smáðar
Vont er þegar veröld vilja breyta
feministar friði neita
forynjur þær ættu að heita
Fröken Hildur hún er engin hetja
Kynjum vill í kappi etja
og kallana á jaðar setja
úr viðjum losna líkamanna
lárétt sex svo láta banna
Þótt feminista flestir okkar forðast kunni
vökvaþurrð í Venusbrunni
veldur skaða' á náttúrunni
Að gaspra svona gagnast ekki geði mínu
Ber er hver á bloggi sínu
Bið að heilsa Jósefínu