Saxast á vinsældir Hönnu Birnu

Ég hef aldrei skilið Hönnu Birnu. Hún lítur út eins og lesbía, talar eins og transkona og er orðin æðsti yfirmaður löggæslu og dómsmála án þess að hafa nokkurn vott af hæfileikum né skilningi til að sinna þeim málaflokkum. Hún valtar yfir alla, bæði samherja og andstæðinga og allt á innsoginu því hún talar svo hratt að allir gapa en enginn skilur upp né niður.  Ég bara neita að trúa, að hún verði langlíf í þessu embætti, sem hún greinilega ræður ekki við.  Að hafa orðið fótaskortur einu sinni er hægt að afsaka en þrisvar sinnum er dæmi um alvarlegan dómgreindarbrest. Fyrstu merkin um vanhæfi ráðherrans voru yfirlýsingar hennar um eignarrétt kröfuhafa versus eignarrétt skuldara þar sem hún tók eindregna afstöðu með þeim fyrrnefndu. Næst fannst henni engin ástæða til að blanda sér í fullkomlega löglegar framkvæmdir í Gálgahrauni að hennar mati.  Jafnvel þótt málaferli væru í gangi um meint lögmæti þessara framkvæmda fyrir dómsstólum.  Og nú hyggst hún setja lög sem brjóta á tjáningarfrelsi landsmanna. Í hvaða krossferð er þessi kona?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband