21.11.2014 | 14:50
Talað í gegnum Þorvald Lúðvík
Fréttin á RUV er dæmigerð ekki frétt. Þarna er Samherji að reka áróður fyrir sínum hagsmunum og notar við það embættismann sem er látinn semja fréttatilkynningu í nafni óháðra samtaka. Í þessu tilfelli Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. En við hljótum að sjá hvaða hagsmunir liggja undir. Samherji er með fiskvinnslu við Eyjafjörð og vill að ríkið setji meiri pening í Akureyraflugvöll til þess að þeir geti notað hann fyrir fiskútflutning á eigin afurðum. Sama er um Egilstaðavöll að segja. Að sveitastjórnamenn láti misnota sig svona segir í raun allt um þá atvinnukúgun sem á sér stað vegna samþjöppunar aflaheimilda langt umfram allt velsæmi. En Samherji á bráðum hálft Ísland í félagi við Þórólf hjá KASK. Þeir stefna að óvinveittri yfirtöku og við erum þau einu sem getum stoppað þá.
Er ekki tími til kominn að rumska??
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.