22.11.2014 | 18:54
Ríkisstjórnin fer með fjárveitingavaldið
Hvað er Árni Páll að rífa kjaft? Það hlusta varla margir á veika gagnrýni stjórnarminnihlutans Þær breytingar sem fjárlög taka eru vegna þrýstings frá fjölmiðlum og almenningi en alls ekki út af nöldri minnihlutans í þingsal. Ef Árni og Katrín hefðu ekki slátrað stjórnlagafrumvarpinu sællar minningar,þá hefði kannski verið hægt að breyta þessu þannig að Alþingi færi í reynd með fjárveitingavaldið. En þau sviku það eins og fleira af sínum stefnumálum. Þess vegna verðum við bara að sætta okkur við að framkvæmdavaldið er í raun einrátt. Og þegar stjórnarmeirihlutinn á líka dómarana þá er stjórnarskráin einskis virði. Og þá er stutt í að lýðræðisréttur almennings verði fótum troðinn. Alla vega hefur forsetinn ekki séð ástæðu til að skjóta deilumálum til þjóðarinnar eftir að ríkisstjórn ríka fólksins tók við..
Ríkisstjórnin komin á undanhald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:56 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.